LIND Fasteignasala, Atli Pálmason lgfs & Andri Freyr Halldórsson lgfs, kynna til sölu:
Vel skipulagt átta herbergja danskt Hosby einbýlishús á tveimur hæðum við Heimartún á Álftanesi.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 237.3 fm, og skiptist í fyrstu hæð 158,9 fm og íbúð í risi 78,4 fm.
*Fasteignamat skv. fmr fyrir árið 2026 er 147.900.000 kr.*
***SELD MEÐ FYRIRVARA***
***ER MEÐ KAUPENDUR Á SKRÁ EF ÞÚ ERT MEÐ SAMBÆRILEGA EIGN Á ÁLFTANESI, HAFÐU ÞÁ SAMBAND: ANDRI S: 7626162 ***
*Fallegt einbýli með mikla möguleika.
*Frábær staðsetning á Álftanesi.
*Möguleiki á útleigu efri hæðar.
Eignin skiptist í:
Neðri hæð: Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og sólskála.
Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu og baðherbergi.
Nánari lýsing neðri hæðar:
Anddyri: með parket flísum á gólfi.
Stofa & borðstofa: er björt og rúmgóð með harðparket á gólfi.
-Útgengt er úr rýminu út í sólskála og gróinn smekklegan garð.
Sjónvarpshol: með parket flísum á gólfi.
Eldhús: er snyrtilegt með hvítri innréttingu ásamt eyju með góðu borð- og skápaplássi.
-Ísskápur, helluborð og bakaraofn í vinnuhæð.
Hjónaherbergi: með rúmgóðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi 1: rúmgott, með harðparketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Svefnherbergi 2: rúmgott, með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: með flísum á gólfi og hluta veggja. Með flísalagðri ''walk-in '' sturtu með blöndunartækjum, handklæðaofni, upphengdu salerni og innréttingu með vaski.
Baðherbergi 2: er flísalagt hólf í gólf með baðkari, upphengdu salerni, ásamt innréttingu með vaski.
Þvottahús: með vinnuborði og flísar á gólfi.
-Útgengt er út í garð frá þvottahúsi.
Sólskáli: Rúmgóður sólskáli með hellulögn. Skálinn nýtist vel sem útisvæði fyrir borðhald og samveru.
Nánari lýsing efri hæðar:
Stofa & borðstofa: er björt og rúmgóð með harðparket á gólfi.
Eldhús: er snyrtilegt með hvítri innréttingu, með góðu borðplássi og skápaplássi.
Svefnherbergi 1: með harðparketi á gólfi
Svefnherbergi 2: með harðparketi á gólfi
Svefnherbergi 3: með harðparketi á gólfi
Baðherbergi: með flísum á gólfi og hluta veggja. Með sturtuklefa, salerni og innréttingu með vaski.
-Tengi fyrir þvottavél og þurkarra.
Lóð & garður: 895,0 fm eignarlóð með rúmgóðri heimreið og fallega grónum vel hirtum garði sem býður upp á gott skjól og næði.
Allar nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 762-6162 eða andri@fastlind.is
Atli Pálmason, löggiltur fasteignasali, í síma 6624252 eða atli@fastlind.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.