RE/MAX og Bára Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali kynna:
Snyrtilega tveggja herbergja kjallara íbúð við Miklubraut 78, 105 Reykjavík.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 64,4 fm, auk sameginlegs þvottahúss á hæðinni. Íbúðin hefur verið uppgerð að hluta til, vel skipulögð og björt íbúð á góðum stað í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari lýsing:
- Eignin skiptist í: Anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, geymslur og þvottahús.
- Sameiginlegur inngangur. Geymsla sem tilheyrir íbúðinni er á stigagangi við hlið íbúðarinnar.
- Svefnherbergið er rúmgott og bjart. Stór færanlegur fataskápur og nýlegar flísar á gólfi.
- Eldhúsið er með nýlegum blöndunartækjum, Bosch keramikhelluborði og bökunarofni. Góður gluggi er við eldhúsið.
- Stofan er rúmgóð og björt, nýlegt parket á gólfi og gluggar á tvo vegu.
- Baðherbergið er með nýlegum flísum, handklæðaofni, nýlegur vaskur, sturta og blöndunartæki.
- Rúmgóð geymsla undir stiga á stigagangi.
- Sameiginlegt þvottahús og garður.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:
Bára Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
RE/MAX senter
Skeifan 17 / 108 Reykjavík
E-mail: bara@remax.is
Sími: 773-7404
ERT ÞÚ Í SÖLU HUGLEIÐINGUM? Hafðu samband
HÉR fyrir FRÍTT og skuldbindingarlaust söluverðmat á þína eign.
Hér er facebook síðan mín Heimasíða RE/MAX Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar) af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.