Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:Þrjár íbúðir !!
Um er að ræða 127,2 fm einbýlishús ásamt 43,2 fm frístandandi bílskúr. Húsið er byggt árið 1946 en bílskúrinn árið 1968. Íbúðarhúsið er hæð og kjallari og er í dag tvær íbúðir sem hvor um sig er 63,6 fm. Húsið er steinsteypt og múrað og málað að utan en bárujárn er á þaki. Innkeyrlsa er malbikuð og garðurinn gróinn. Bílskúrinn er úr timbri. Á hæðinni eru tvö svefnherbergi, stofa, hol, eldhús, baðherbergi og anddyri auk lítillar geymslu. Í kjallaranum er eitt herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og stofa.
Stúdíóíbúð er í bílskúr. Húsið var málað sumarið 2025 auk þess sem farið var í múrviðgerðir og skipt um tvo glugga. Íbúðin í bílskúrnum herfur verið gerð upp og m.a. sett nýtt hitakerfi í hana.
Nánari lýsing:
Hæð:
Forstofa: Flísalögð
Hol: Parketlagt
Eldhús: Korkflísar á gólfi. Kirsuberjaviðarspónlögð innrétting
Herbergi; Plastparket.
Herbergi: Plastparket.
Stofa: Parketlögð.
Baðherbergi: Upphengt Wc. Flísar á gólfi. Sturtuklefi, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél. Kirsuberjaviðarspónlögð innrétting
Geymsla: Án gólfefna.
Kjallari:
Eldhús: Hvít innrétting. Flísar á gólfum
Þvottahús: Flísalagt gólf, sturta, Kirsuberjaviðarspónlögð innrétting
Herbergi: Flísalagt gólf, fataskápur.
Snyrting: Kirsuberjaviðarspónlögð innrétting, wc.
Stofa: Flísalagt gólf
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.