Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Ramblas Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
150 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
50.700.000 kr.
Fermetraverð
338.000 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
701210526
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir/Þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM ÚTSÝNISSTAÐ Á LAS RAMBLAS GOLFVELLINUM* *AUKAÍBÚÐ* *EINKASUNDLAUG* 

Stórglæsilegt, rúmgott einbýlishús með frábæru útsýni yfir Las Ramblas golfvöllinn. Góð lóð með einkasundlaug. Húsið er á þremur hæðum og á jarðhæð er möguleiki á séríbúð. Staðsett um 50 mín akstur suður af Alicante og einungis örfá skref frá golfvellinum. Hér er einstakt tækifæri til að eignast fasteign við golfvöllinn á afar hagstæðu verði.

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.is


Nánari lýsing:
Húsið er á þremur rúmgóðum hæðum og á öllum hæðum er útgengt út á svalir/verönd. Á efstu hæð er björt og rúmgóð stofa með arni og útgengi á einkasvalir með víðáttumiklu útsýni yfir golfvöllinn. Á sömu hæð er einnig aðskilið, fullbúið eldhús og gestasalerni. Á miðhæðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi með sérbaðherbergi, bæði með innbyggðum fataskápum og beinu útgengi á sameiginlegar svalir með útsýni yfir golfvöllinn — fullkominn staður til að slaka á og njóta umhverfisins. Á jarðhæðinni er fullkomlega sjálfstæð íbúðareining sem samanstendur af stóru eldhúsi, rúmgóðri stofu og tveimur svefnherbergjum með beinu útgengi út í garð með sundlaug og grillaðstöðu. Þessi eining er mjög hentug þegar taka þarf á móti næturgestum eða jafnvel til útleigu.

Eignin er staðsett á einu eftirsóttasta golfsvæði Costa Blanca og þar sameinast á einum stað þægindi, útsýni og huggulegheit á frábærum stað nálægt ströndum, þjónustu og golfaðstöðu.

Frábært tækifæri fyrir golfara, fjárfesta eða alla sem leita að rúmgóðu heimili í sólinni.

Húsið er vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á Las Ramblas Golfvellinum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, La Finca, Lo Romera, Roda Golf, La Marquesa og fleiri.
Ca. 10 mín akstur er niður á strönd og ca. 5 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í næsta nágrenni, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf ofl.

Verð: 349.995 Evrur. (ISK 50.700.000,- 1Evra=145ISK)

LAS RAMBLAS GOLFVÖLLURINN
Þennan golfvöll þurfa allir alvörugolfarar að prófa amk. einu sinni um æfina. Þessi golfvöllur er ekki allra, annað hvort hatar þú völlinn eða elskar hann. Allavega er þetta golfvöllurinn fyrir golfara sem vilja taka áhættur, en geta líka valið auðveldari leiðir. Völlurinn var opnaður árið 1991, hannaður af Pepe Gancedo. Hann er ca. 5.800 metra langur og par 72. Hönnun vallarins er sérlega skemmtileg, holurnar fjölbreyttar og bjóða upp á ýmis erfiðleikastig. Þennan golfvöll er bæði hægt að fara á golfbíl eða ganga hringinn, sem skapar fjölbreytni í upplifun.

Las Ramblas golfvöllurinn þykir einstaklega fallegur, með mikla náttúru og grænan gróður. Tré og gil eru stundum fyrir golfaranum, en þegar maður sigrast á vellinum skapar það tilfinninguna um að langa að koma strax aftur. En eitt er víst, að ef þú hefur einu sinni spilað Las Ramblas er það völlur sem þú manst alltaf eftir.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með mjög hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: útsýni, air con, BBQ, einkasundlaug, geymsla, golf, endursölueign, einbýli, villa, 
Svæði: Costa Blanca, Las Ramblas Golf,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 14 (403)
Opið hús:24. maí kl 14:00-14:30
Hnjúkamói 14 (403)
815 Þorlákshöfn
53.7 m2
Fjölbýlishús
211
855 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 14 (402)
Opið hús:24. maí kl 14:00-14:30
Hnjúkamói 14 (402)
815 Þorlákshöfn
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
767 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Miklabraut 72
Skoða eignina Miklabraut 72
Miklabraut 72
105 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús
211
880 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Jakasel 25
Skoða eignina Jakasel 25
Jakasel 25
109 Reykjavík
255.9 m2
Einbýlishús
936
Fasteignamat 139.750.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin