Björt, rúmgóð og vel skipulögð þriggja herbergja 71,2 m² íbúð á annarri og efstu hæð í vel staðsettu fjölbýlishúsi við Furugrund í Kópavogi. Um er að ræða góða staðsetnigu í grónu íbúðahverfi í Kópavogi.Lýsing:Stór
forstofa með fataskáp,
eldhús með snyrtilegri innréttingu, viftu, nýlegri frístandandi eldavél með keramikhelluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Í eldhúsi er lítill borðkrókur.
Hjónaherbergi með nýlegum fataskáp frá 2023,
barnaherbergi með fataskáp. Rúmgott
baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu við vask, viftu og baðkari með sturtuaðstöðu. Rúmgóð og björt
stofa með góðri aðstöðu fyrir
borðstofu, frá stofu er útgengt út á góðar
suðursvalir.Á öllum gólfum eignarinnar utan baðherbergis er parket, flísar eru á gólfi baðherbergis. Eigninni fylgir geymsla í kjallara með hillum.Nýlegar endurbætur á íbúð: 2026 - Skipt um rafmagnsinnstungur í allri íbúðinni. 2025 - Allar innihurðir íbúðarinnar endurnýjaðar. 2023 – Endurnýjun gólfefna og gólflista í allri íbúðinni utan baðherbergis, nýr fataskápur settur upp í hjónaherbergi.Í snyrtilegri sameign hússins er stórt sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð hefur aðstöðu fyrir eigin þvottavél og þurrkara. Einnig er þar rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með þvottasnúrum.Góð eign á vinsælum stað í Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþrótta- og leiksvæði, alla helstu þjónustu og Fossvogsdalinn.
Frekari upplýsingar veitir:
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is