ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Silfursmári 4, 201 Kópavogur, birt stærð 127.5 fm.Einstaklega falleg og vel skipulögð
3-4 herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu, staðsett miðsvæðis í Kópavogi. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð.
Eignin skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi (möguleiki á þriðja), baðherbergi, gestasalerni og þvottahús. Stofa og eldhús mynda opið og rúmgott rými með útgengi á svalir.
** Möguleiki á þremur svenherbergjum
** Sérmerkt bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð** Lyftuhúsnæði
** Miðsvæðis í kópavogi
** Vönduð eign með fallegum innréttingum fra axis.
** MynddyrasímiNánari upplýsingar veitir/veita: Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7719820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.Nánari lýsing eignar:
Forstofa er rúmgóð með þreföldum fataskáp.
Gestasalerni er flísalagt á gólfi og hluta veggja, með hvítri, snyrtilegri innréttingu, speglaskáp og upphengdu salerni.
Svefnherbergisgangur: Veggur hefur verið stækkaður og útbúinn aðstaða fyrir skrifstofu eða tölvuaðstöðu.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og hluta veggja, með fallegri innréttingu, vaski og speglaskáp, rúmgóðri walk-in sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum.
Barnaherbergi hefur parket á gólfi og fataskáp frá ikea.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá axis sem hefur verið stækkuð og búrskáp bætt við fyrir aukið geymslupláss. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgja. Eyjan hefur einnig verið stækkuð og rúmar fjóra stóla.
Stofan er rúmgóð og björt, opin við eldhús, með útgengi út á svalir.
Borðstofa er í opnu rými við stofu og eldhús, með möguleika á að breyta í þriðja svefnherbergið ef þörf er á auka svefnherbergi.
Svalir eru 8,1 fm og snúa til vesturs, beint út í garð þar sem leiksvæði eru.
Bílakjallari með sérmerktu stæði og hleðslustöð fyrir rafbíl fylgir eigninni. Stæðið er beint á móti inngönguhurð við lyftu.
Sérgeymsla í sameign er skráð 6.8 fm.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.
Umhverfi: Íbúðin er staðsett miðsvæðis í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og fallegar göngu- og hjólaleiðir – tilvalið fyrir þá sem vilja hafa allt við höndina.
Húsið er klædd með Cembrit (sementsklæðningu) og litaðri álklæðningu auk þess sem það eru ál-tré gluggar og er því húsið viðhaldslítið. Allir innveggir eru hlaðnir eða staðsteyptir. Grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu er uppsett í bílakjallara.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.