Fasteignaleitin
Skráð 3. okt. 2026

Silfursmári 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
75.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.500.000 kr.
Fermetraverð
952.064 kr./m2
Brunabótamat
51.500.000 kr.
Byggt 2023
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25202421
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða nýlega og vel skipulagða tveggja herbergja 75.1 fermetra íbúð á 3. hæð með góðu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Silfursmára 2.
Vandaðar innréttingar með KVARTS-stein á borðum bæði á baði og eldhúsi, vönduð Siemens heimilstæki frá Smith & Norland, mjög snyrtilega sameign og vandaður frágangur á allri íbúð og húsi.
Frábær staðsetning í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 64.4 fm merkt 03-03-01 og geymsla er 10.4 fm merkt 04-00-06, samtals 75.1 fm að stærð. 
Það er ekki stæði í bílgeymslu með þessari íbúð en möguleiki að fá leigt bílastæði.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eignin skiptist í:

Forstofu/hol, stofu/borðstofu og eldhús í alrými, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu.
Sameiginlegar hjóla/vagnageymslur eru á 1.hæð.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol er rúmgóð og eru vandaðir tvöfaldir fataskápar upp í loft í rými.
Stofa/borðstofa og eldhús er opið og bjart rými með útgengi á rúmgóðar norð-vestur svalir og er fallegt útsýni af svölum.
Eldhúsinnrétting er af vandaðri gerð frá Nobilia/GKS með KVARTS-stein á borðplötum, vönduð Siemens heimilstæki frá Smith & Norland innbyggð uppþvottavél og þá eru tveir ofnar í innréttingu (hefðbundinn og combi), helluborð í innréttingu og gufugleypir þar fyrir ofan.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskáp.
Baðherbergi er með vönduðum flísum á gólfi og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, upphengt salerni, vönduð innrétting á baðherbergi frá Nobilia/GKS með KVARTS-stein í borðplötu og eru skúffur undir vask í innréttingunni og veggskápur með speglum, handklæðaofn.
Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baðherbergi.
Gólfefni: Vandað parket og flísar á gólfum eignar.
Sérgeymsla er í kjallara.

Á fyrstu hæð eru tvær hjóla- og vagnageymslur fyrir íbúa hússins.
Íbúðarhluti Silfursmára 2 er með tveimur inngöngum, annars vegar frá Silfursmára gegnt Smáralind á 1. hæð og hins vegar garðmegin á 2. hæð.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Núpalind 6
Skoða eignina Núpalind 6
Núpalind 6
201 Kópavogur
76.1 m2
Fjölbýlishús
211
840 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 15
IMG_6188.jpeg
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
83 m2
Fjölbýlishús
211
878 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Sunnusmári 7
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Sunnusmári 7
Sunnusmári 7
201 Kópavogur
111.2 m2
Fjölbýlishús
413
996 þ.kr./m2
110.800.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 28
Opið hús:06. okt. kl 17:00-17:30
Langholtsvegur 28
104 Reykjavík
55.8 m2
Fjölbýlishús
211
876 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin