Borg fasteignasala kynnir til sölu: Ásvallagata 10A, 101 Reykjavík, bjarta og fallega íbúð í Gamla Vesturbænum. Íbúðin er 108,6 m2 og skiptist í tvö rúmgóð herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og stóra geymslu. Klassískt og fallegt þriggja íbúðahús á besta stað.
Umfangsmikið viðhald var framkvæmt árið 2025 m.a nýir gluggar og gler, múrviðgerðir, rennur endurnýjaðar og húsið málað að utan.
Hér er um að ræða fallega íbúð í fallegu húsi við fallega götu.Nánari lýsing:
Vel skipulögð íbúð með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu, eldhús og baðherbergi. Í kjallara er rúmgóð 17,3 fermetra geymsla.
Sameiginlegur inngangur er með efri hæð.
Í anddyri er harðparketi á gólfi. Komið er inn í hol sem er miðja íbúðarinnar.
Eldhúsið er hlýlegt með hvítri innréttingu og viðarborðplötum.
Stofan er björt og rúmgóð með fallegum glugga og listum í kverkum.
Svefnherbergi I: Bjart herbergi með harðparketi.
Svefnherbergi II: Rúmgott herbergi með parketi og möguleiki er á að breyta því í stofu og opna yfir í stofuna.
Baðherbergi er snyrtilegt flíslagt og með hvítri innréttingu. Baðkar með sturtuaðstöðu og gluggi.
Húsið stendur á gróðursælum og eftirsóttum stað í gamla Vesturbænum.
Stutt í miðbæinn og alla helstu þjónustu sem vesturbærinn hefur upp á að bjóða.
Framkvæmdir 2025- Skipt um glugga og gler
- Múrviðgerðir
- Rennur endurnýjaðar
- Húsið málað að utan
Nánari upplýsingar veitir
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447 - gunnlaugur@fastborg.is.
Victor Levi R. Ferrua, Löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 - victor@fastborg.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3.Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.