Valhöll fasteignasala og Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali s. 693-3356 kynna, Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð í góðu lyftuhúsi með stæði í bílastæðahúsi. Húsvörður starfar fyrir húsfélagið. Góð aðkoma og fallegt útsýni. Íbúðin er laus.
Íbúðin skiptist í anddyri, hol, stofa / borðstofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymsla innan íbúðar og bílastæði í bílastæðahúsi.
Sameiginleg líkamsræktaraðstaða og púttvöllur er á lóð hússins. Íbúðin er miðsvæðis og stutt er í alla þjónustu. Hægt er að setja upp þvottavél í geymslu en er einnig sameiginlegt þvottahús á stigapalli fyrir fjórar íbúðir þessarar hæðar.
Nánar:
Samkvæmt Þjóðskrá er eignin skráð 01-0304, íbúð 103,7 m2 Stæði í bílageymslu merkt 04-0101.
Anddyri: Parket á gólfi, góður skápur.
Stofa/borðstofa: Með parket á gólfi. Úr stofu er útgengi út á svalir sem eru með svalarlokun.
Eldhús: Rúmgott eldhús með parketi á gólfi, vönduð innrétting með góðum efri og neðri skápum, ljós borðplata og flísar á vegg milli efri og neðri hluta innréttingar. Innfeld lýsing í lofti, keramik helluborð, vifta og ofn.
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, stór skápur.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi og skápur.
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf, sturta, baðkar og vönduð innrétting með skápum, stór spegill með lýsingu fyrir ofan.
Geymsla: Geymsla innan íbúðar með hvítum hillum, tengi fyrir þvottavél.
Stæði í lokaðri bílageymslu: Merkt 04-0101
Annað: Sameign hússins er vel um gengin og snyrtileg, húsvarðaríbúð í sameign er í útleigu og skilar húsfélaginu tekjum. Sameiginleg líkamsræktar aðstaða og púttvöllur á lóð hússins.
Í kjallara er sameiginleg geymsla þar sem hver íbúð er með sýnar hillur til afnota.
Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fast í s. 693-3356 eða á heidar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.