Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Bugðufljót 10 3-117

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
63.1 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
29.400.000 kr.
Fermetraverð
465.927 kr./m2
Fasteignamat
27.450.000 kr.
Brunabótamat
21.950.000 kr.
Mynd af Gunnar Bergmann Jónsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Löggiltur fasteignasali
6903408www.eignamidlun.isEignalisti
Byggt 2025
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2535619
Landnúmer
210634
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
17
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt hús
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Sameigninlegt
Inngangur
Sérinngangur
Glæsileg athafnabil á afgirtu og vöktuðu svæði í Mosfellsbæ. Um er að ræða þrjú athafnabil sem eru 63,1 fm auk þess er búið að setja milliloft í öll bilin. Svæðið er afgirt með aðgangsstýrðu hliði og vaktað með öryggismyndavélum.  Sameigninlegt húsnæði með þvottaaðstöðu er á svæðinu sem allir hafa aðgang að. Búið að klæða gólfin með Epoxy og setja rafdrifna opnun í stóru innkeyrsluhurðina. Laust til afhendingar við kaupsamning.
Verð á hverja einingu er: 29.400.000 kr

Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is


Húsin eru byggð úr samlokueiningum úr steinull og stáli, steingráum að utan og hvítum að innan.  Gólf eru steypt og slípuð með vatnshalla að niðurfalli, búið er að setja epoxy á öll gólf. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru bilin upphituð með hitaveituofnum. Lóð er fullfrágengin, malbikuð og upplýst. Svæðið er afgirt og aðgangi stýrt í gegnum tvö rafdrifin hlið. Tvenn sameiginleg salerni ásamt bílaþvottaaðstöðu eru á svæðinu, annað tveggja salerna eru aðgengilegt hreyfihömluðum. Bílastæði í séreign fylgja öllum bilum í formi 35fm séreignarsvæðis fyrir utan hvert bil þar sem hægt er að leggja tveimur bílum.
Í hverju bili eru tvær loftristar til að tryggja loftskipti, önnur neðarlega í hurð en hin ofarlega í vegg. Loftskipti eru náttúruleg, þ.e.a.s. án viftu, en hægt er að bæta viftu við á auðveldan hátt. Í hverju bili er niðurfall í gólfi. Tilbúinn 100mm skólpstammi (stútur) er í hverju bili, en í hann er hægt að tengja fráveitu, t.d. salerni, handlaug, vask eða sturtu.
Þriggja fasa rafmagn er dregið í töflu og því auðvelt að setja upp og tengja þriggja fasa tengla. 10-16A einfasatenglar eru í rýminu, bæði á veggjum og í lofti.
Frádráttarmælir er í greinatöflu í hverju rými sem lesið er af til að gera upp rafmagnsnotkun hvers og eins, t.d. einu sinni á ári. Húsfélag ákveður útfærslu þessa nánar þegar húsfélag er komið er í fullan rekstur. Ljósleiðari er dreginn inn í hvert bil með endabúnaði sem tilbúinn er til tengingar við búnað (router) fjarskiptafyrirtækis. Því er auðsótt að fá tengingu internets inn í hvert bil.
LED ljós eru í lofti hvers bils sem veita góða almenna lýsingu. Á hverju húsi eru upp/niður ljós með tveggja innkeyrsluhurða millibili sem lýsa samkvæmt sólúri og veita ratlýsingu. Ljósastaurar eru einnig á lóðinni sem lýsa skv. sólúri og veita góða almenna lýsingu.
Ljóskastarar eru fyrir ofan hverja hurð, sem lýsa eftir hreyfiskynjurum. Lóðinni er skipt í nokkur svæði þar sem kveikingar fara eftir staðsetningu þeirra sem hreyfa sig. Þeir veita góða flóðlýsingu í myrkri svo allir geti athafnað sig vel í svartasta skammdeginu.
Lóðin er afgirt í heild sinni og tvö rafdrifin hlið sem stýra umferð inn og út af svæðinu. Aðeins aðilar á sérstökum aðgangslista geta opnað hliðin. Öryggismyndavélar verða við innkeyrslur sem vakta umferð inn og út af lóð.
Bílaþvottaaðstaða
Sérstök bílaþvottaaðstaða verður á svæðinu. Þar verður hægt að þvo bíla innandyra allan ársins hring við bestu aðstæður. Þar verður hefðbundin vatnsslanga til skolunar, háþrýstidæla með sápuhólfi, öflug iðnaðarryksuga, sorpílát, vaskur, vatnssköfur og fl. sem þarf til að eigendur bila geti hugað að bílum sínum í góðum aðstæðum.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/02/202614.150.000 kr.90.000.000 kr.189.3 m2475.435 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bugðufljót 17B
Skoða eignina Bugðufljót 17B
Bugðufljót 17B
270 Mosfellsbær
63.8 m2
Atvinnuhúsn.
494 þ.kr./m2
31.500.000 kr.
Skoða eignina Hverafold 1-3
Skoða eignina Hverafold 1-3
Hverafold 1-3
112 Reykjavík
52.7 m2
Atvinnuhúsn.
427 þ.kr./m2
22.500.000 kr.
Skoða eignina Bugðufljót 10 3-119
Bugðufljót 10 3-119
270 Mosfellsbær
63.1 m2
Atvinnuhúsn.
11
466 þ.kr./m2
29.400.000 kr.
Skoða eignina Bugðufljót 10 3-118
Bugðufljót 10 3-118
270 Mosfellsbær
63.1 m2
Atvinnuhúsn.
11
466 þ.kr./m2
29.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin