Fasteignaleitin
Opið hús:07. sept. kl 16:15-17:00
Skráð 3. sept. 2026

Smárahlíð 8a

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
83.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.500.000 kr.
Fermetraverð
589.988 kr./m2
Fasteignamat
45.100.000 kr.
Brunabótamat
49.900.000 kr.
Byggt 1979
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2150578
Landnúmer
149384
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Óþekkt
Raflagnir
Tenglar hafa verið endurnýjaðir
Frárennslislagnir
Búið er að endurnýja klóaklögn við húsið skv. yfirlýsingu húsfélags 13.7.2026
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt - sjá nánari uppl í yfirlýsingu húsfélags
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Góð timburverönd með skjólveggjum
Upphitun
Hitaveita, ofnar endurnýjaðir 2017. Handklæðaofn á baðherbergi
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags dags 31.8.2026 um yfirstandandi og samþykktar framkvæmdir. Eftir er að hlaða vegg austan við plan á lóðarmörkum, bæta við jarðvegi, hækka planið og malbika. Einnig samþykkt að jarðvegsskipta á grasbletti og setja lagnir fyrir rafhleðslu.
Fyrirhugað að fara í endurbætur á þaki, en þær framkvæmdir eru ósamþykktar. 
Gallar
- Sér aðeins á parketi í stofu.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Smárahlíð 8a - Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Glerárhverfi - Stærð 83,9 m²

Eignin skiptist í forstofu/inngang, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi, auk sér geymslu í sameign.

Forstofa/inngangur er með harðparketi á gólfi og dökkum fataskáp.
Eldhús er með ljósri innréttingu, dökkri bekkplötu og flísum milli skápa. Stæði er fyrir ísskáp og uppþvottavél. Harðparket er á gólfi.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými með harðparketi á gólfum. Þaðan er útgengt út á góða timburverönd með skjólveggjum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi. Hjónaherbergið er með góðum, fimmföldum fataskáp.
Á baðherbergi eru gráar flísar á gólfi og veggjum, góð innrétting með handlaug og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Walk-in sturta, vegghengt wc og handklæðaofn.
Sér geymsla fylgir íbúðinni. 

Annað
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð
- Baðherbergi var endurnýjað 2021
- Ofnar endurnýjaðir 2017
- Sumarið 2026 var frárennslislögn frá húsinu endurnýjuð og steypt ný stétt.
- Vel staðsett eign í Þorpinu, nálægt íþróttasvæði Þórs, skóla og leikskóla.
- Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/09/202126.200.000 kr.33.900.000 kr.83.9 m2404.052 kr.
12/05/202026.300.000 kr.25.500.000 kr.83.9 m2303.933 kr.
14/09/201717.250.000 kr.23.500.000 kr.83.9 m2280.095 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Hvammur
www.kaupa.is

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarmastígur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101.6 m2
Fjölbýlishús
32
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 203
Opið hús:05. sept. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D2 203
108 Reykjavík
104.1 m2
Fjölbýlishús
322
1008 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 703
Opið hús:05. sept. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D2 703
108 Reykjavík
67.4 m2
Fjölbýlishús
221
1274 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 13 (íbúð 108)
Hleðslustöð
0507.jpg
Mánatún 13 (íbúð 108)
105 Reykjavík
105.1 m2
Fjölbýlishús
312
865 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin