Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna: BJÖRTUSALIR 2 KÓPAVOGI - RÚMGÓÐ 4RA HERB.ÍBÚÐ ÁSAMT INNB. BÍLSKÚR.
-----EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA------Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og bjarta brúttó 116,7 fm íbúð á 2. hæð t.h.ásamt 28,6 fm.innbyggðum bílskúr.
Sjálf íbúðin sem er með glugga á þrjá vegu er 109,7 fm ásamt 7,0 fm geymslu á jarðhæð.
Húsið er með alls fimm íbúðum og er lóð og sameign til fyrirmyndar.
Frábær og eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, verslanir, sund, golf, fallegar gönguleiðir og fleira.
NÁNARI LÝSING:Forstofa með vinylflísum á gólfi og fataskápum.
Rúmgott hol, miðja íbúðar þaðan sem gengið er í allar vistarverur, parket á gólfi.
Eldhúsið er allt endurnýjað rúmgott og bjart með vinylflísum á gólfi, nýlegri hvítri innréttingu,,flísar á veggjum, vönduð tæki og borðkrókur. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Mjög rúmgóð og björt stofa með gluggum á tvo vegu, parket á gólfum og útgengt út á yfirbyggðar upphitaðar 8,5 fm suðusvalir með flísum á gólfi.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi og skápum.
Hjónaherbergi með parketi og skápum.
Baðherbergið er rúmgott, flísalagt, innrétting, sturtuklefi og baðkar.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu, flísar á gólfi og vaskborð.
Bílskúrinn er innbyggður, hægra megin, flísar á gólfi, vinnuborð og vaskur. .
Eignin Björtusalir 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 224-4043, birt stærð 145.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.