Lindasíða 2 íbúð 402 - 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi með góðu útsýni - stærð 67,7 m² auk sér geymslu í kjallara 4,8 m² að stærð. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, svefnherbergi, baðherbergi og tvær geymslur.
Forstofa er með parketi á gólfi og hvítum skápum. Eldhús, ljós sprautulökkuð innréttingu með flísum á milli skápa og parketi á gólfi. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út í flísalagða sólstofu og þaðan út á steyptar suður svalir. Stofa er björt og opin og með parketi á gólfi. Svefnherbergi er með stórum sprautulökkuðum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergi er með slitsterku efni á gólfi og flísum á hluta veggja. Ljós innrétting og sturta. Tengi fyrir þvottavél er inn á baðherbergi. Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur innan íbúðar með dúk á gólfi og hillum á hluta veggja, hin geymslan er í kjallara og skráð 4,8 m² að stærð.
Annað - Búið er að endurnýja hluta af gleri. - Yfirbyggður gangur er á milli Lindasíðu 2 og 4 og yfir í þjónustumiðstöðina í Bjargi. - Mikið útsýni. - Ný lyfta var sett upp árið 2023. - Eign fyrir 60 ára og eldri
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Upprunalegt - sjá yfirlýsingu húsfélags. Búið er að gera við tvo turna og beðið er eftir að verktakinn fari í hina tvo.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
sjá yfirlýsingu húsfélags
Gallar
Smá skemmd er í lofti fyrir ofan sturtu. Sprunga í veggflís á baðherbergi. Eignin er að stærstum hluta í upprunalegu ástandi.
Lindasíða 2 íbúð 402 - 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi með góðu útsýni - stærð 67,7 m² auk sér geymslu í kjallara 4,8 m² að stærð. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, svefnherbergi, baðherbergi og tvær geymslur.
Forstofa er með parketi á gólfi og hvítum skápum. Eldhús, ljós sprautulökkuð innréttingu með flísum á milli skápa og parketi á gólfi. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út í flísalagða sólstofu og þaðan út á steyptar suður svalir. Stofa er björt og opin og með parketi á gólfi. Svefnherbergi er með stórum sprautulökkuðum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergi er með slitsterku efni á gólfi og flísum á hluta veggja. Ljós innrétting og sturta. Tengi fyrir þvottavél er inn á baðherbergi. Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur innan íbúðar með dúk á gólfi og hillum á hluta veggja, hin geymslan er í kjallara og skráð 4,8 m² að stærð.
Annað - Búið er að endurnýja hluta af gleri. - Yfirbyggður gangur er á milli Lindasíðu 2 og 4 og yfir í þjónustumiðstöðina í Bjargi. - Mikið útsýni. - Ný lyfta var sett upp árið 2023. - Eign fyrir 60 ára og eldri
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.