Fasteignaleitin
Skráð 7. maí 2026

Lækjarhjalli 22

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
277.1 m2
7 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
178.500.000 kr.
Fermetraverð
644.172 kr./m2
Brunabótamat
134.900.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20641325
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Mjög fallegt og vandað 277,1 fm einbýlishús með bílskúr við Lækjarhjalla 22 í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið sem er á tveimur hæðum er einstaklega vel staðsett en það er innst í botnlangagötu og vestan við húsið er opið svæði. Stór, skjólsæll og gróinn garður er til suðurs. Arkitekt hússins er Benjamín Magnússon. Mjög mikil lofthæð er á efri hæð hússins og þakgluggar. Samkvæmt Fasteignaskrá er húsið skráð 277,1 fm en þar af er bílskúrinn skráður 28,2 fm. Hluti af rými á neðri hæð hússins er gluggalaus. Til eru teikningar frá árinu 2003 frá sama arkitekt sem gera ráð fyrir að settir séu gluggar og dyr á rýmið.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is og Sverrir Kristinsson Lögg. fasteignasali, tölvupóstur sverrir@eignamidlun.is


Efri hæð:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða og flísalagða forstofu með fatahengi.
Snyrting: Innaf forstofu er flísalögð snyrting með glugga.
Gangur: Frá forstofu er komið inn á gang. Gólf er flísalagt. Mjög mikil lofthæð er á gangi og þakgluggar. 
Eldhús: Rúmgott eldhús með fallegri sérsmíðaðri viðarinnréttingu. Borðplata er úr granít. Ofn og háfur úr stáli. Áfast lítið eldhúsborð.
Stofa: Gengið er niður nokkur þrep í stofuna. Fallegur horngluggi í stofu. Gólf í stofu er málað. Gengið er út í garð úr stofu.
Borðstofa: Gengið er í borðstofu frá gangi og eldhúsi. Gólf er flísalagt. Hægt er að ganga út í garð úr borðstofu.
Herbergi:  Rúmgott flísalagt herbergi með fallegum bogadregnum glugga. Herbergið getur nýst sem vinnuherbergi og/eða svefnherbergi.

Neðri hæð:
Hol/gangur: Steyptur flísalagður stigi er á milli hæða. Komið er í flísalagt hol. Gengið er út í garð frá gangi.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og var yfirfarið og standsett fyrir ca fimm árum. Baðkar og sturta. Innrétting með granítborðplötu.
Herbergi I: Rúmgott hjónaherbergi með skápum. Linoleum dúkur á gófi. Stór gluggi að garði. 
Herbergi II: Bjart og fallegt herbergi sem hægt er að nýta sem vinnuherbergi eða svefnherbergi. Linoleum dúkur á gólfi.
Einnig eru  þrjú gluggalaus herbergi sem nýta má á ýmsan hátt. Rúmgóð rými sem væri hægt að nýta sem sjónvarpsherbergi, skrifstofa, tómstundaherbergi, fataherbergi, geymsla eða fyrir aðra sértæka starfsemi sem krefst næðis. Gengið er niður nokkur þep í eitt þeirra sem nýtt var sem vinnustudió. Rýmin eru gluggalaus en á samþykktum teikningum frá árinu 2003 er gert ráð fyrir gluggum og hurð út í garðinn. Síðasta teikningin í auglýsingu á vefnum sýnir neðri hæð með þeim breytingum sem hafa ekki farið fram.  Þá með þremur svefnherbergjum á neðri hæð
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Gólf er málað.

Bílskúr: 28,1 fm rúmgóður bílskúr með góðri lofthæð. Innangengt er í bílskúrinn frá gangi á efri hæð hússins. Sjálfvirkur hurðaopnari. Hiti er í hluta af bílaplani.

Mjög falleg og vönduð eign á eftirsóttum stað.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47B
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Grænatún 20A
Skoða eignina Grænatún 20A
Grænatún 20A
200 Kópavogur
164.3 m2
Raðhús
523
912 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Lerkidalur 1
Bílskúr
Skoða eignina Lerkidalur 1
Lerkidalur 1
260 Reykjanesbær
239 m2
Einbýlishús
525
606 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 601
Opið hús:02. júlí kl 11:30-12:30
Orkureiturinn D1 601
108 Reykjavík
120.3 m2
Fjölbýlishús
312
1245 þ.kr./m2
149.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin