Vel skipulögð og afar sjarmerandi 4 herbergja þakhæð í fallegu þríbýlishúsi á vinsælum stað í Hafnarfirðinum. Stutt er í alla helstu þjónustu á borð við skóla á öllum stigum, verslun, Suðurbæjarlaug og miðbæ Hafnarfjarðar.
** 3 svefnherbergi
** Mikið endurnýjuð að innan
** Frábær staðsetning
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 99,6m2, þar af geymsla 1,9m2
Eignin skiptist í hol/gang, eldhús, 3 svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing
Gengið er inn af stigapalli þar sem er fatahengi og geymsla
Hol/gangur tengir saman flest rými eignarinnar. Flot á gólfi.
Baðherbergi er með viðarinnréttingu og dökkri borðplötu með stæði fyrir þvottavél, handlaug, upphengdu salerni, baðkari með sturtu og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Eldhús er með hvítri innréttingu og viðarborðplötu, bakaraofni, spanhelluborði, viftu og stæði fyrir uppþvottavél. Tveir litlir ísskápar eru innbyggðir í innréttingu. Flísar eru á hluta veggja og flot á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Svefnherbergi III er inn af borðstofu með rennihurð og útgengi á svalir. Flot á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt. Flot á gólfi.
Sameiginlegt þvottarými og geymsla á jarðhæð þar sem þvottavélar eru í séreign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.