Fasteignaleitin
Opið hús:15. júlí kl 16:00-16:30
Skráð 9. júlí 2026

Hálsasel 5

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
186.4 m2
7 Herb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
670.064 kr./m2
Fasteignamat
109.100.000 kr.
Brunabótamat
99.100.000 kr.
Mynd af Björn Þorri Viktorsson
Björn Þorri Viktorsson
hrl. og lögg. fasteignasali
www.midborg.isEignalisti
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2054871
Landnúmer
112902
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað þakjárn.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Fasteignasalan Miðborg kynnir fallegt og mikið endurnýjað 186,4 fm. 5 svefnherbergja raðhús á tveimur hæðum, með innbyggðum bílskúr að Hálsaseli 5 í Reykjavík.  Á neðri hæð er forstofa, hol, þrú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.  Á efri hæð er hol, stofur, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.

Neðri hæð:  Rúmgóð flísalögð forstofa með fataskápum.  Af henni er parketlagt forstofuherbergi með fataskáp en einnig er inngangur í bílskúrinn úr forstofu.  Holið er parketlagt og opið við forstofu. Þrjú parketlögð herbergi eru á neðri hæð og fataskápar í tveimur þeirra.  Stærsta herbergið er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi.  Baðherbergið er flísalagt, með sturtu, innréttingu og handklæðaofni.  Stórt flísalagt þvottahús með innréttingu og aðstöðu fyrir vélar í vinnuhæð.  Útgangur á stóra hellulagða verönd með útisnúrum úr þvottahúsi.

Efri hæð:  Fallegur teppalagður stigi.  Gott parketlagt hol, samliggjandi við bjartar stofur með útgangi á stórar sólríkar suðursvalir (svalagólf klætt með bambus).  Opið við stofuna er nýtt flísalagt eldhús með vönduðum tækjum, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp.  Gólfhiti í eldhúsi.  Parketlagt hjónaherbergi með skápum og annað parketlagt herbergi með skáp.  Baðherbergið er rúmgott, flísalagt með stórri sturtu, innréttingu, handklæðaofni og góðum glugga.  Bílskúrinn er með vatni, hita og rafmagni og innaf bílskúrnum er góð geymsla.  Hiti í bílaplani

Á sameiginlegri  baklóð er leikvöllur með mörkum og tækjum.  Frábær staðsetning mitt á milli Seljaskóla og Ölduselsskóla (ca. 5 min gangur).

Húsið er talsvert endurnýjað.
2016 var skipt um öll gólfefni nema á eldhúsi og votrýmum, allar innihurðir endurnýjaðar sem og eldvarnarhurð inn í bílskúr, teppi og handrið á stiga, allir fataskápar í herbergjum og í holi. Skipt var um innréttingu í þvottahúsi og baðherbergi á neðri hæð. Einnig var skipt um alla ofna, blöndunartæki og loftaklæðningar í baðhergi og svefnherbergjum efri hæðar. 
Mest allt raflagnaefni (tenglar og rofar) endurnýjað. Skipt var um allt gler á norðurhlið og einn glugga. Skipt var um alla gluggalista á norðurhlið og nokkra á suðurhlið og þakkantur endurnýjaður og málaður þeim megin. 
2018 var planið hellulagt að framan og bætt við tveimur bílastæðum þannig að þau eru þau þrjú í dag.
2020 var skipt um útidyrahurðina.
2024 var húsið málað að utan og sett ný rafmagnstafla.
2026 nýtt eldhús og settur hiti í eldhúsgólf.

Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-70700, tölvupóstur bjorn@midborg.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/09/202062.200.000 kr.75.900.000 kr.186.4 m2407.188 kr.
16/06/201639.000.000 kr.47.000.000 kr.186.4 m2252.145 kr.
20/04/200731.390.000 kr.36.300.000 kr.186.4 m2194.742 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
21.7 m2
Fasteignanúmer
2054871
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.550.000 kr.

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fossvogsvegur 12
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 12
Fossvogsvegur 12
108 Reykjavík
169.8 m2
Fjölbýlishús
413
1207 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 16
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 16
Fossvogsvegur 16
108 Reykjavík
189.4 m2
Fjölbýlishús
514
1162 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 24
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 24
Fossvogsvegur 24
108 Reykjavík
189.2 m2
Fjölbýlishús
514
1163 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 28
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 28
Fossvogsvegur 28
108 Reykjavík
170.5 m2
Fjölbýlishús
413
1202 þ.kr./m2
205.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin