BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÁARGERÐI 13B, 700 Egilsstaðir. Nýtt fjögurra herbergja parhús með innbyggðum bílskúr við lítin botnlanga á Egilsstöðum. Smellið hér fyrir staðsetningu. ** Laust til afhendingar við kaupsamningHúsið er parhús byggt árið 2023, byggingarefni timbur. Húsið skiptist í íbúð 97,5 m² og bílskúr 32,6 m² samtals 130,1 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, gangur og bílskúr.
Nánara skipulag:Anddyri, þaðan er innangengt í
bílskúr.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er úr stofuhluta á timburverönd framan við húsið.
Eldhús, með Ikea innréttingu, spanhelluborði, ofni í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél, ísskáp og örbylgjuofni í innréttingu (fylgir ekki).
Gangur liggur frá alrými að öðrum rýmum.
Þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp.
Barnaherbergin eru bæði með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi, upphengt salerni, vaskinnrétting með handlaug ofan á borði, sturta, sturtugler, gluggi. Gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu á baðherbergi.
Bílskúr, innangengt er i bílskúr úr anddyri.
Gólfhiti er í allri eigninni. Húsið afhendist með góflhitakerfi sem blæs heitu lofti. Gólfhitakerfi er tengt og fullfrágengið með stýringum.
Gólfefni: Vínyl parket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á anddyri og baðherbergi. Málað epoxy er á bílskúr.
Húsið er parhús byggt úr forsniðnum timbureiningum á einni hæð á steyptum sökkli og steyptri plötu. Veggir hússins eru klæddir að utan með svartri/dökkri timburklæðningu.
Þak er léttbyggt, einhalla timburþak. Allir gluggar eru PVC gluggar, svartir að utan og hvítir að innan.
Lóð verður grófjöfnuð, möl í bílastæði, pláss fyrir 2 bifreiðar. Timburverönd u.þ.b. 9 m² er framan við húsið.
Í rafmagnstöflu verður gert ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum rafbíla, lagnaleiðir er frá að bílastæði með tengimöguleika.