Fasteignaleitin
Skráð 20. mars 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
83.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
102.900.000 kr.
Fermetraverð
1.226.460 kr./m2
Fasteignamat
8.350.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Elísabet Kvaran
Elísabet Kvaran
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532725
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 506.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar vorið 2025.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu jafnvel tilboð beint á sölusíðu eignarinnar í eCASA.

Björt og stórglæsileg 3ja herbergja þakíbúð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 83,9 fm þar af 6,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1. Íbúðin er fyrir 50 ára og eldri.

Nánari lýsing:Í anddyri eru góðir fataskápar. Anddyri opnast beint inn í rúmgott og opið alrými; eldhús og stofa/borðstofa með útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa að innri garði. Eldhúsinnrétting með hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Rúmt svefnherbergi með skáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0032. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr auglýstri íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Smyrilshlíð 9
102 Reykjavík
100.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
100.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (422)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (422)
102 Reykjavík
90 m2
Fjölbýlishús
312
1043 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (327)
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (327)
102 Reykjavík
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19. IB220
Bílastæði
Hlíðarfótur 19. IB220
102 Reykjavík
99.4 m2
Fjölbýlishús
312
995 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin