Rúmgóð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 12. hæð í góðu lyftuhúsi með rúmgóðum svölum til suðaustur og stæði í bílageymslu. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.
Sameign eintaklega snyrtileg. Næg bílastæði. Samkvæmt teikningu er íbúðin 3ja herbergja en stofan er einstaklega rúmgóð eins og skipulagið er í dag.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 90,5 fm og þar af er geymsla 7,1 fm.
Fasteignamat fyrir árið 2026 verður 74.750.000 kr. Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með fataskáp.
Eldhús með L-laga innrétting með efri og neðri skápum, pláss fyrir innbyggða uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa er björt með glugga í suður og útgengi út á rúmgóðar suðaustur svalir með flísum á gólfi. Fallegt útsýni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Baðherbergi með sturtu, góð innrétting, salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla íbúðarinnar er á jarðhæð hússins.
Stæði í bílageymslu er merkt íbúðinni. Búið er að leggja rafmagn fyrir rafhleðslustöð. Mjög góð sameiginleg þvottaaðstaða með háþrýstitæki
Dúkur á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.
Hér er um að ræða frábæra staðsetningu í Salarhverfi Kópavogs með góðar almenningssamgöngur. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt góðri íþróttaaðstöðu og sundlaug. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru við fjölbýlið og golfvöllurinn við Leirdal rétt við húsið.
Tvær lyftur eru í húsinu er nýbúið að skipta um stýrikerfi í þeim. Sameign er einstaklega snyrtileg og vel umgengin.
Allar nánari upplýsingar veitir Auðun Ólasson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is