Fasteignaleitin
Skráð 31. ágúst 2026

Áshamar 54

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
102.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
915.205 kr./m2
Brunabótamat
71.340.000 kr.
Byggt 2023
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25266431
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Vel skipulögð og björt fimm herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit ásamt bílastæði í bílakjallara í nýlegu lyftuhúsi við Áshamar í Hafnarfirði. Ný Ásvallarbraut veitir greiða samgönguleið til og frá svæðinu. Sérinngangur - fjögur svefnherbergi - bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð - sérafnotaréttur - gólfhiti - gólfsíðir gluggar. Eignin er vel staðsett í húsinu.   

Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 100 fm, eign merkt :01-07, geymslan er 2,6 fm merkt 00-40 , samtals: 102,6 fm að stærð. Eigninni fylgir einnig stæði í bílakjallara, merkt: 07-B14, og er það ekki inn í fermetratölu eignar. Eignaskiptayfirlýsing: Eignin er íbúð á 1. hæð. Henni fylgir geymsla í kjallara, 00-40 og sérafnotaflötur sem er 22,9 fm. Bílakjallari: Allar eignir eru með sér rafmagnsmæli.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í anddyri / forstofu með innbyggðum fataskáp. Á hægri hönd frá forstofu / anddyri er parketlagður svefnherbergisgangur þar sem eru þrjú svefnherbergi og eru þau öll með fataskáp. Frá hjónaherbergi er unnt að ganga út á hellulagða verönd. Flísalagt baðherberg í hólf og gólf, hvít innrétting, Walk-in sturta, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eldhús með fallegri innréttingu frá AXIS og vönduðum tækjum frá AEG, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Eldhús er opið inn í bjarta stofu með útgengi á sérafnotareit. Herbergi innaf stofunni og er það með fataskáp. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgangi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymlsu. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. 

Staðsetning hverfisins er frábær með tilliti til útivistar, til dæmis Ástjörn, Helgafelli og Hvaleyarvatn. Stutt í íþróttasvæði Hauka á Ásvöllum.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is

Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Áshamar 56 (106)
412_02_MasterBedroom.jpg
Áshamar 56 (106)
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
413
798 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
82.3 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 313
Hleðslustöð
laugarborg 313.jpg
Skoða eignina Laugaborg 313
Laugaborg 313
105 Reykjavík
118 m2
Fjölbýlishús
312
1016 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0420
Hleðslustöð
laugaborg 420 .jpg
Skoða eignina Laugaborg 0420
Laugaborg 0420
105 Reykjavík
112.1 m2
Fjölbýlishús
312
1007 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin