Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905, kynna í einkasölu
Fallega, bjarta, mjög mikið endurnýjaða og vel skipulagða 98,4 m2 íbúð á neðstu hæð í fjórbýlishúsi með sér inngangi við Gnoðarvog 82, 104 Reykjavík.
Húsið er teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt og ber þess merki hvað varðar skipulag og litaval utanhúss.
- Íbúðin er skráð skv. HMS 113,3 fm þar af 8,8 fm sér geymsla.
- Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 98,4 fm
- Kjallarahæð, lítið niðurgrafinn
- Sér inngangur. Má hafa gæludýr !
- 3ja herbergja - tvö rúmgóð svefnherbergi
- Eldhús fallega endurnýjað ca. 2025
- Baðherbergi fallega endurnýjað 2025
- Gólfhiti lagður um alla íbúð ásamt nýrri gólfhitastýringu.
- Nýtt parket lagt á alla íbúðina.
- Allt raflagnaefni hefur verið endurnýjað, þar á meðal ný rafmagnstafla
- Nýtt skólp lagt fyrir íbúðina út að nýlegum brunni við götu; hún er með sérlagnir, óháð öðrum íbúðum í húsinu.
- Nýjar vatns- og fráveitulagnir lagðar.
- Öll neysluvatnsrör í íbúðinni eru ný
- Gólfefni endurnýjað
- Gluggum og glerjum var skipt út í allri íbúð að einum undanskildum
- Geymsla innan íbúðar.
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, vinnu/leikherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með fatahengi og skóskápum.
Hol: Af forstofu er gengið niður 2 tröppur á ganginn en þar er tölvu- og snyrti aðstaða. Af honum er baðherbergi/þvottahús, vinnu/leikherbergi og geymsla íbúðarinnar.
Eldhús/borðstofa/stofa/: Parketlögð, bjart rými með stórum gluggum og útgengi á nýlegan stóran lokaðan pall með skjólveggjum.
Af stofu, flísalagt, L-laga beikibæsaðri innréttingu. Ofn í hæð, borðplata, vifta og pláss fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Af stofu. Parketllagt, með glugga út í garð.rúmgott með skápum á heilum vegg.
Svefnherbergi: Af stofu. Parketllagt, með opnum skápum í L á vegg.
Baðherbergi: Flísalagt og mjög rúmgott. Endurnýjuð vaskinnrétting 06 ´25, "walk in" sturta/baðkar, veggskápar og salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baði.
Þvottahús:
Geymsla: Af holi. Með hillum.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 695-8905 eða elin@valholl.is
Fasteignagjöld 2026 eru 69.550.000