Fasteignaleitin
Skráð 14. maí 2025
Deila eign
Deila

Heiðargerði 8 Frystiklefi

Atvinnuhúsn.Suðurland/Selfoss-803
560.3 m2
Verð
98.000.000 kr.
Fermetraverð
174.906 kr./m2
Fasteignamat
71.800.000 kr.
Brunabótamat
204.200.000 kr.
Mynd af Steindór Guðmundsson
Steindór Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2014
Sérinng.
Fasteignanúmer
2346926
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt/imbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Heiðargerði 8, Flóahreppi.  Atvinnuhúsnæði/frystiklefi sem er 560,3 fm að grunnfleti með góðri lofthæð. Steypt plan framan við hús.  Stór lóð með góðu aðgengi frá Þjóðvegi 1. Ýmsir notkunarmöguleikar. Möguleiki á langtímaleigu á hluta eða allri eigninni. 

Um er að ræða iðnaðarhús í skipulögðu iðnaðarhverfi rétt utan við Selfoss við Þjóðveg 1.  Húsið er hannað og innréttað sem frystigeymsla en getur nýst til ýmsra annara hluta þar sem er m.a. mikil lofthæð í húsinu og auk þess stórt úti athafnasvæði, öflugt rafmagnsinntak, og heitt vatn.
Húsið er nú innréttað sem tveir aðskildir frystiklefar og tæknirými. Hvor frystiklefi er 258,1 fm. Frystiklefarnir eru steinsteyptir, steinsteypt, vélslípuð plata og forsteyptar einingar á þaki með ábræddum pappa.  Að innan er það einangrað með yleiningum.  Lofthæð í því rými er frá 6,5 m upp í um 7,5 m.  Frystikerfi eru í báðum hlutum en frystikerfi í öðrum klefa er óvirkt.  Að utan eru tvær hliðar klæddar með bárujárni.  Á hvorum frystiklefa er gönguhurð og lestunarhurð.  Meðfram langhlið hússins að framanverðu er steinsteypt plan. 
Sambyggt frystiklefunum er tæknirými sem er 44,1 fm. sá hluti hússins er byggður úr timbri klæddur að utan með bárujárni.  Innkeyrsluhurð. 
Húsið er byggt árið 2014. 
Lóðin er 4257,1 fm leigulóð frá Flóahreppi.  Nýtingarhlutfall lóðar 0,3 skv. deiliskipulagi. 

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/09/202467.400.000 kr.25.000.000 kr.560.3 m244.618 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin