Vel skipulögð þriggja herbergja 74,4 fermetra íbúð á jarðhæð/kjallara í þríbýli á frábærum stað við Safamýri í Reykjavík. Íbúðin er með sérinngang og gluggum til allra átta. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, íþróttasvæði og samgöngur ásamt skóla og leikskóla.Smellið hér til að fá söluyfirlit sent straxSamkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 74,4m².
Lýsing eignar:Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur. Gengið er inn í sameign frá forstofu.
Stofa: Rúmar vel stofu og borðstofuborð, harðparket á gólfi, gluggar á tvo vegu.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og góðri hvítri innréttingu. Bakaraofn, keramik helluborð og vifta. Flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél og gluggi til suðurs.
Gangur: Með harðparketi á gólfi. Gengið inn í bæði svefnherbergin og baðherbergi frá gangi.
Svefnherbergi 1: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi 2: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og upp á veggi, baðkar með sturtutækjum, góð innrétting við handlaug og skápur á vegg.
Geymsla: Er staðsett á jarðhæð í sameign. Ekki er að sjá að þeir fermetrar séu skráðir
Þvottahús: Er staðsett á jarðhæð í sameign, sér tenglar fyrir hverja íbúð, vinnuborð, skápar og þvottasnúrur.
Lóðin er frágengin, tyrfð með gróðri umhverfis lóðarmörk. Hellulögð stétt að inngangi. Steinhleðsla og falleg hellulögð verönd fyrir framan íbúð.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma
896 1168 - brynjar@eignamidlun.is