SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*
Sérlega glæsilegar og vel hannaðar íbúðir í lúxusblokk á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóð íbúð, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við stórar svalir með frábæru útsýni. Bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu. Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu. Íbúðum á jarðhæð og efstu hæð fylgir líka einkasundlaug.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is
Lýsing:Rúmgóð og glæsileg íbúð (102fm), stórar svalir út frá stofu (41 fm), samtals er um að ræða 143 fm. sérafnotarými. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir. Glæsilegur fallegur sameiginlegur sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt. Bílastæði í bílakjallara fylgja ásamt sér geymslu. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar.
ÞESSAR ÍBÚÐIR ERU Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI OG ÁN NOKKURS VAFA MEÐ GLÆSILEGUSTU ÍBÚÐABLOKKUNUM Á ÖLLU COSTA BLANCA SVÆÐINU.Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum. Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Loftkæling/hitun fylgir og auk þess er gólfhiti í allri íbúðinni.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél fylgja.Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
AÐEINS ÖRFÁAR ÍBÚÐIR Í BOÐI, EN EINNIG ER HÆGT AÐ FÁ STÆRRI ÍBÚÐIR Í SAMA HÚSI.Verð miðað við gengi 1 Evra = 150 ISK.
Íbúð með 2 svefn. + 2 baðh.
Verð frá 575.000 evrur (86.200.000ISK) + kostn.
Íbúð með 3 svefhn. + 2 baðh.
Verð frá 725.000 Evrum (108.700.000 ISK) + kostn.
AÐEINS ÖRFÁAR ÍBÚÐIR EFTIR.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign, stórar svalir,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,