Valborg fasteignasala kynnir glæsilegt og afar vandað parhús við Lindarberg 66, Hafnarfirði. Frábær staðsetning í hinu vinsæla Setbergslandi. Eignin er samtals 255 fm þar af 30.5 fm bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa og eldhús með aukinni lofthæð, einnig herbergi, andyri, gestasnyrting og bílskúr. Á neðri hæð eru 4 svefnherbergi, fjölskylduherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og andyri. Garður með fallegum gróðri, hellum með snjóbræðslu, heitum potti og pöllum. Fallegt útsýni.
Nánari lýsing á efri hæð:
Stofa: Hátt undir loft með innfeldri lýsingu, björt og opin með með flísum á gólfi. Arinn og hurð út á svalir. Blágrýti í öllum gluggakistum.
Borðstofa: Er björt og opin inn í stofu með hurð út á svalir.
Eldhús: Opið inn í borðstofu. Innfelld lýsing, borðplata úr granít, ofn í vinnuhæð, örbylgjuofn og mikið skápapláss.
Anddyri og gangur: Flísalagt með fataskáp.
Forstofuherbergi: Flísalagt og notað sem skrifstofa í dag.
Gestasnyrting: Flísalagt gólf með vegghengdu salerni.
Bílskúr: Gönguhurð er inn í bílskúr hægra megin við útidyrahurð. Stórt geymslloft.
Nánari lýsing á neðri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart hjónaherbergi. Út frá hjónaherberginu er verönd og heitur pottur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi 1: Rúmgott bjart barnaherbergi. Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi 2: Gott barnaherbergi með hornglugga. Parket á gólfi og fataskápur.
Barnaherbergi 3: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Fjölskylduherbergi/sjónvarpsstofa: Af efri hæð er komið niður parketlagðan stiga.Flísar á gólfi og gólfhiti. Undir stiga er lítil geymsla.
Andyri: Gott skápapláss. Flísar á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með stórri innréttingu, sturtu, baðkari og vegghengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum. Gólfhiti.
Þvottaherbergi: Er með innréttingu, skolvaski og flísum á gólfi.
Húsið: Viðhaldi hússins hefur verið vel sinnt gegnum árin og síðast fyrir 4 árum var skipt um mest allt gler. Veggir og gluggar hússins voru málaðir fyrir 2-3 árum. Snjóbræðsla er undir hellum fyrir framan inngang og bílskúr. Í garðinum er fallegur gróður, stórir trépallar og heitur pottur. Fallegt útsýnir frá svölum og frá efri hæð.
Hafið samband og bókið skoðun. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 8965865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.