Fasteignaleitin
Skráð 15. sept. 2024

Öldugata 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
317.6 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
240.150.000 kr.
Brunabótamat
199.800.000 kr.
ÞS
Þórir Skarphéðinsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1927
Jarðhæð af 4
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2001587
Landnúmer
100499
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi að sögn eiganda
Raflagnir
Í lagi að sögn eiganda
Frárennslislagnir
Í lagi að sögn eiganda
Gluggar / Gler
Í lagi að sögn eiganda
Þak
engin leki eða fúi að sögn eiganda
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Til austurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:
Öldugata 16  tæplega 400 fm eign í 101 Reykjavík. Eitt af glæsilegri og virðulegri húsum Reykjavíkur sem stendur á stórri hornlóð við Öldugötu og Ægisgötu. Húsið er steinað að utan með Hrafntinnu og Silfurbergi sem gefur því einstakt útlit og yfirbragð. Sér íbúð á jarðhæð.

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á undanförnum árum m.a. skipt um alla glugga í húsinu, þakrennur endurnýjaðar ásamt öllum leiðslum undir húsi. Nýlega var gerð ítarleg ástandsskoðun á húsi og er skýrsla um niðurstöðu þeirrar skoðunnar aðgengileg hjá Betri Stofunni.

Myndband af eigninni


Aðalhæðin skiptist í anddyri, stórar og rúmgóðar stofur og borðstofu, gestasnyrtingu, eldhús og búr. Bakinngangur frá eldhúsi. Efri hæð er með baðherbergi, gufu, svefnherbergjum og svölum. Rúmgott risloft með góðri lofthæð og gluggum sem er ekki í fermetrastærð. Endurnýjuð rúmgóð 4ra herbergja íbúð í kjallara er stærri en skv. FMR. Tveir inngangar eru í kjallaraíbúð og áður var stigi úr fyrsta herberginu innan húseignar uppá aðalhæðina. Bílskúrinn er skráður 40 fm.
Byggingarstíll og gæði eru með eindæmum ásamt staðsetningu í gamla Vesturbænum. 

Nánari lýsing eignar: Húsið er að mestu upprunalegt og frábært tækifæri að koma húsinu í nútimahorf en á sama tíma halda í þann mikla karakter sem er til staðar í húsinu og hönnun þess. Aðalhæð og ris: Komið er inn á marmaralagt og viðarklætt anddyri með góðum sérsmíðuðum skáp úr mahony viði, en sá viður er ríkjandi í klæðningum og innréttingum hússins.  Innaf anddyri er komið inná parketlagt hol með skemmtilegu stjörnumynstri og þaðan er gengið upp stórglæsilegan mahony stiga uppá aðra hæð. Í holi er lítil gestasnyrting.   Úr anddyri er gengið til stofa, fyrst er stór bókastofa, stór dagstofa er þar við hliðina og loks stór og falleg borðstofa. Gegnheilt eikarparket með fiskibeinamynstri er á borðstofu og bókastofa er með stjörnulaga mynstri í parketinu. Dagstofan er teppalögð ljósu teppi. Á milli stofanna eru rennihurðir ísettar einstaklega fallegu slípuðu gleri í litlum frönskum gluggum. Aukin lofthæð er á hæðinni. 
Innaf borðstofu er eldhús með eldri snyrtilegri innréttingu og lítið búr eða köld geymsla er þar við hliðina. Útgengt er út í garð úr eldhúsinu.
Á annarri hæð eru tvö svefnherbergi, lokuð af með afar fallegum hurðum ísettum litlum frönskum gluggum. Úr gangi er útgengt út á svalir þaðan sem útsýni er mikið yfir Miðbæinn og Vesturbæinn.  Annað svefnherbergið er stórt hjónaherbergi og stórt parketlagt baðherbergi. Með hinu svefnherberginu er stórt baðherbergi með gufubaði og sturtuklefa. Gegnheilt parket er á öllum herbergjum sem auðvelt er að pússa upp og endurnýta aftur og aftur.
Íbúð í kjallara: Á neðstu hæð hússins er íbúð með sérinngangi þar sem komið er inná flísalagt anddyri og er þaðan opið inní eldhús. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og borðkrók. Gangur er frá anddyri í þrjú herbergi sem í dag eru tvö svefnherbergi og stofa. Baðherbergi er innst í ganginum, flísalagt með sturtuklefa.
Þvottahús er inná hæðinni en þaðan er útgengt út í garðinn. Garður hússins er sannkallað listaverk þar sem mosavaxnir steinar umlykja falleg blómabeð og tré. Í fullum sumarskrúða er þetta einn af fallegri görðum þessa gamalgróna hverfis. Í garðinum framan við húsið er lítill gosbrunnur miðju steinhlaðins blómabeðs. Bílskúrinn við húsið er 40 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Hann er klæddur sömu klæðningu og húsið, úr hrafntinnu og silfurbergi. Bílskúrinn þarfnast gagngerra endurbóta. Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina og nýverið var skipt um rennur og niðurföll á öllu húsinu. Allir gluggar hafa verið verið uppgerðir og nýtt gler sett í. Þak hússins er klætt fallegum rauðlituðum steini. 
Eignarlóð 461 fermetrar.

Þorleifur Eyjólfsson húsameistari teiknaði húsið. Þorleifur teiknaði fjölda húsa og kom fram með merkar nýjungar í reykvískri húsagerð á árunum 1925-1932 og má segja að hann hafi innleitt straumlínulagið í íslenskan arkitektúr þess tíma. 

Hér er um að ræða glæsilegt einbýlishús á besta stað í borginni með miðborgina og Grandann í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Öll helsta þjónusta, verslun, kaffi- og veitingahús allt í kring ásamt fjölbreyttu menningarlífi. Skólar á öllum stigum í nágrenninu. 

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1946
40 m2
Fasteignanúmer
2001587
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
14.900.000 kr.
Byggt 1927
63.5 m2
Fasteignanúmer
2001587
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
40.350.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mjóahlíð 10
Diddi_vefur (39).jpg
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Mjóahlíð 10
105 Reykjavík
103 m2
Fjölbýlishús
413
873 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 4
Skoða eignina Tryggvagata 4
Tryggvagata 4
101 Reykjavík
69.2 m2
Fjölbýlishús
211
Fasteignamat 67.900.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Snorrabraut 62
Skoða eignina Snorrabraut 62
Snorrabraut 62
105 Reykjavík
52.6 m2
Fjölbýlishús
211
1158 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) 505
5P1A6759-enhanced.jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) 505
101 Reykjavík
104.3 m2
Fjölbýlishús
321
1198 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin