Fasteignaleitin
Skráð 13. ágúst 2026

Asparskógar 18

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
76.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
862.565 kr./m2
Fasteignamat
53.600.000 kr.
Brunabótamat
49.300.000 kr.
Byggt 2023
Jarðhæð af 4
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2519856
Landnúmer
207764
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
*** Asparskógar 18 - 300 Akranes ***

PRIMA Fasteignsala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna:
Björt og falleg 76.4 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð (1. hæð) með sérinngang í glæsilegri og vandaðri nýbyggingu í rólegu hverfi á Akranesi. Innan eignar er anddyri, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi þar sem einnig er þvottarými. Útgengi úr stofu út á ca 28 fm verönd/sérafnotareit (gras að hluta til). 5.7 fm geymsla er í sameign. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLIT 

SJÁ MYNDBAND AF EIGN (WALKTHROUGH VIDEO)

Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur frá GKS. Flísar á gólfi.
Eldhús: Vönduð brún Nobilia innrétting með hvítum efri skápum frá GKS innréttingum. Raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Vifta er frá Elica. Eldhúsvaskur og blöndunartæki er svart að lit og er frá Tengi. Harðparket á gólfi.
Stofa: Rúmgott og bjart alrými, utgengt út á ca 28 fm verönd/sérafnotareit (gras að hluta til). Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Fataskápur frá GKS. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með brúnni borðplötu og hvítri handlaug. Speglaskápur yfir handlaug. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta og handklæðaofn. Hitastýrð blöndunartækin frá Tengi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Veggflísar og gegnheilar flísar á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla eignar er í kjallara, stærð 5.7 fm. Stúkuð af með möskaveggjum frá Rými Ofnasmiðjunni ehf. Gólf er lakkað. 

Annað: Ljósleiðari er tengdur inn í húsið og endar í tengikassa hverrar íbúðar. Netdreifikerfi er í íbúðinni. Ljósbreytir við tengikassa kemur frá símafélagi íbúans. Sorpgeymslur eru niðurfelldar á lóð (djúpgámar)
Sameign: Á 1. hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.

Asparskógar 18 er virkilega vandað og vel skipulagt 40 íbúða fjöleignarhús á 2-5 hæðum. Húsið er byggt upp með forsteyptum einingum, einangrað og klætt að utan með ál- og timburklæðningu. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa, einangrað og með PVC dúk. Lyftur eru í tveimur opnum stigahúsum.
Stutt í leikskóla, golfvöll, og skógræktina.


Nánari upplýsingar veitir:
Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 / oliver@primafasteignir.is

__________________________________________________________________________________________

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/09/202445.650.000 kr.57.900.000 kr.76.4 m2757.853 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Beykiskógar 19
Skoða eignina Beykiskógar 19
Beykiskógar 19
300 Akranes
73.5 m2
Fjölbýlishús
312
815 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Flyðrugrandi 10
Opið hús:13. ágúst kl 17:00-17:30
IMG_5095.jpg
Skoða eignina Flyðrugrandi 10
Flyðrugrandi 10
107 Reykjavík
70.1 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 54
3D Sýn
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Áshamar 54
Áshamar 54
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
413
792 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 19
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kuggavogur 19
Kuggavogur 19
104 Reykjavík
61.4 m2
Fjölbýlishús
211
959 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin