Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2025
Deila eign
Deila

Brekkuás 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
94.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
778.714 kr./m2
Fasteignamat
69.600.000 kr.
Brunabótamat
51.450.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2012
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2320295
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
upprunalegt (2012)
Raflagnir
upprunalegt (2012)
Frárennslislagnir
upprunalegt (2012)
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (c.a. 2022)
Þak
upprunalegt (2012)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já - leyfi fyrir svalalokun
Lóð
3,11
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu fallega 3ja herbergja útsýnisíbúð á vinsælum stað við Brekkuás 9 í Hafnarfirði. Um er að ræða vel staðsetta eign á þriðju og efstu hæð í góðu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi á fallegum útsýnisstað í Áslandinu. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, stofu, borðstofu og eldhús með eyju í opnu rými, baðherbergi,  þvottaherbergi innan íbúðar og sérgeymslu á 1. hæð. Frábært útsýni er frá íbúðinni og leyfi fyrir svalalokun. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is

*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 94,9 m² þar af er sér geymsla í kjallara 8,5 m² - Fasteignamat næsta árs: 73.700.000.- kr

Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í stofnbrautir ásamt því að öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni, m.a. leikskóli, skóli, íþróttamiðstöð, sundlaug og matvörubúðir, líkamsrækt og margt fleira. Örstutt er í góð útivistarsvæði við Hvaleyrarvatn og Heiðmörk til að njóta útiverunnar auk þess sem fallegar gönguleiðir og hjólastigar liggja í allar áttir um hverfið og náttúruna í kring.

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Nánari lýsing: gengið er inn í lokaða, flísalagða forstofu sem er með fataskáp. Inn af forstofu er parketlagt svefnherbergi með fataskáp. Frá forstofu gengið inn í opið rými með samliggjandi eldhús, stofu og borðstofu með parket á gólfi. Í eldhúsi er með L-laga innréttingu með efri og neðri skápum og eldunareyja með helluborði og háf ásamt skápum. Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með stórum glugga, en útgengt er úr stofu út á rúmgóðar svalir. Glæsilegt útsýni yfir Setbergið og Heiðmörk úr stofu og af svölum. Hjónaherbergið er stórt með góðum fataskápum og parket á gólfi. Baðherbergið er flísalagt á gólfi og á veggjum að mestu, innrétting, handklæðaofn, baðkar og sér sturtubotn með sturtuhengi fyrir. Innaf baðherberginu er þvottahús með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaski og góðum efri skápum.

Nánari skipting og lýsing eignarhluta:
Forstofa er björt með fataskáp og flísar á gólfi. Hægt er að loka á milli forstofu og alrýmis.
Eldhús með hvítri L-laga innrétting og eldunareyju með dökkri borðplötu og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er samliggjandi í björtu og opnu rými opið við eldhús og með parket á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir með glæsilegu útsýni.
Hjónaherbergi er rúmgott með glæsilegu útsýni, góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Barnaherbergi með góðu skápapláss og parket á gólfi.
Baðherbergi með snyrtlegri innréttingu, baðkari, sér sturtu og upphengdu salerni. Flísalagt með ljósum flísum á veggjum og dökkum flísum á gólfi.
Þvottahús er sér inn af baðherbergi með vinnuborði, skolvaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Góðir efri skápar á vegg.
Geymsla fylgir íbúðinni 8,5 m2 að stærð inn af sameignargangi á jarðhæð.
Sameign er snyrtileg og eru þrif innifalin í húsfélagsgjöldum.
Hjóla og vangageymsla er sameiginleg við aðalinngang á jarðhæð.
Lóð er sameiginleg með góðum garði og leiksvæði fyrir börnin.

Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/07/201940.950.000 kr.44.000.000 kr.94.9 m2463.645 kr.
06/09/201732.400.000 kr.40.900.000 kr.94.9 m2430.979 kr.
10/02/20122.040.000 kr.24.900.000 kr.94.9 m2262.381 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 309
Hringhamar 35, íb. 309
221 Hafnarfjörður
98 m2
Fjölbýlishús
312
734 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 505
Bílastæði
Hringhamar 37, íb. 505
221 Hafnarfjörður
89.2 m2
Fjölbýlishús
312
817 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, íb. 203
Bílastæði
Hringhamar 37, íb. 203
221 Hafnarfjörður
94.4 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 - Íb. 204
Bílastæði
Áshamar 26 - Íb. 204
221 Hafnarfjörður
82.9 m2
Fjölbýlishús
312
867 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin