Betri Stofan Fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu eignina Sandskeið G gata 5, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer
220-9305 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Um er að ræða fallegt og vel við haldið sumarhús sem stendur á 5.000 fm eignarlóð á góðum stað á skipulögðu lokuðu sumarhúsasvæði við Þingvallavatn í Bláskógabyggð. Húsið sem er timburhús er 53,6 fermetrar að stærð auk þess er rúmgott svefnloft sem er ekki inni í fermetrtölu hússins. Lóðin er afgirt og einstaklega falleg með tyrfðum flötum trjágróðri og trjám allt um kring. Viðarverönd umlykur bústaðinn að mestum hluta og er með heitum potti á hellulagðri stétt við húsið. Í garði er búið að setja Saunahús.
Borhola með köldu vatni er á lóð. Bílastæði er fyrir allt að fjóra bíla við aðkomu.
Að innan telur eignin:
Forstofu með furugólfi.
Geymsla er út, við inngang, góðar hillur eru í geymslu.
Stofa / borðstofa, eru í einu rými og er með furugólfi. Gluggar eru í þrjár áttir og gengið út á rúmgóða afgirta verönd með breiðum tröppum niður á flöt að framan til suðurs og einnig til austurs. Heitur pottur er á hellulagðri stétt við aðgengi að húsi vestanmegin.
Eldhús, opið við stofu / borðstofu með furugólfi, hvítri viðarinnréttingu, gaseldavél og bakaraofni, uppþvottavél og ískáp.
Svefnherbergi 1, furugólf með komóðu og hillum.
Svefnherbergi 2, furugólf.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og viðarklæddir veggir, flísalögð sturta.
Svefnoft, gengið upp um opin viðarstiga og er opið yfir stofu. Er ekki inni í fermetratölu hússins og er hæðsti punktur 180 cm.
Veiðréttur í Þingvallavatni fylgir eigninni.
Gott sumarhúsafélag á svæðinu sem sér um snjómokstur eftir þörfum á veturna, upp að hliðinu. Ruslagámur skammt frá í umsjá félagsins
Eignin Sandskeið G gata 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
220-9305, birt stærð 53.6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Sigurjónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6624422, tölvupóstur ss@betristofan.is.