Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna sérlega fallega og vel skipulagða 58,6 fm., 2ja herbergja íbúð á 3. hæð með einkabílastæði við Holtsgötu 24, 101 Reykjavík. Skv. fasteignaskrá er eignin 58,6 fm. þar af er 4,7 fm. geymsla á 1.hæð. Einstaklega vel staðsett eign á rólegum og sjarmerandi stað í 101 Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veitir Bergþóra Lárusdóttir, löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Geymsla á jarðhæð og einkabílastæði.
Nánari lýsing:Forstofa: Fataslá með hillu fyrir ofan og skóhillu fyrir neðan. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Ljós innrétting með góðu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og harðparketi á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa. Útgengt út á svalir og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Fataskápur og harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Með innréttingu og baðkari með sturtu. Flísalagt hólf í gólf.
Þvottahús: Sameiginlegt á jarðhæð.
Geymsla: Sér 4,7 fm geymsla á jarðhæð.
Bílastæði: Merkt einkabílastæði er fyrir hverja eign í húsinu.
Það sem hefur verið endurnýjað samkvæmt seljanda:
- Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2019.
- Nýjar innihurðir 2019
- Nýtt gólfefni að hluta til 2019.
-Nýr gluggi í svefnherbergi 2026
Um er að ræða einstaklega fallega íbúð á frábærum stað í 101 þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Þar má telja verslun, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði og skóla
Nánari upplýsingar veita:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.