Borgir fasteignasala kynnir eignina Elliðabraut 22, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-03, fastanúmer 250-7923 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Elliðabraut 22 er skráð sem falleg 2 herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi að Elliðabraut 22 í Norðlingaholti. Birt stærð 53,2 fm.
Húsið er byggt af Mótex árið 2020, fjöldi íbúða í húsinu eru 20. Um er að ræða vandaða og bjarta íbúð þar sem mikið er lagt upp úr hljóðvist og loftgæði. Svalalokun og fallegt útsýni yfir Elliðavatn. Íbúðin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu. Norðlingaholt er í nágrenni við Rauðhóla, Rauðavatn, Heiðmörk og Elliðavatn en þar eru margar góðar gönguleiðir og stutt í náttúruna. Sameign er rúmgóð og björt. Hvítir skápar upp í loft frá Axis. Innfelld lýsing frá Rafkaup. Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Einnig er Norðlingaskóli og leikskólinn Rauðhóll í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna M Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, johanna@borgir.is sími 8200788
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, bjarklind@borgir.is sími 6905123
Nánari lýsing:
Anddyri: Harðparket á gólfi, þrefaldur fataskápur.
Hjónaherbergi: Harðparket á gólfi, þrefaldur fataskápur og skúffur.
Baðherbergi: Baðinnrétting. Hreinlætistæki og handklæðaofn frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Gólfið er flísalagt og veggir að hluta upp í loft. Gengið inn í sturtuna. Tengi fyrir þvottavél og þurkara.
Eldhús/borðstofa: Harðparket á gólfi, innrétting með vaski frá Grohe blöndunartækum frá Byko. Helluborð, blástursofn og gufugleypir eru að gerðinni AEG frá Ormsson.
Stofa: Harðparket á gólfi gengið út um rennihurð út á rúmgóðar 4 fm svalir, gólfsíðir gluggar að hluta. Svalalokun.
Geymsla: Geymsla er í kjallara er 4 fm.
Annað:
Í kjallara eru einkageymslur fyrir hverja íbúð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérstakt loftræstikerfi er í íbúðinni. Kerfið hefur loftskipti með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu og soga lofti út úr baði/þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki er þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunar. Öryggiskerfi er í sameign og í bílakjallara. Djúpruslagámar eru í jaðri lóðar á tveimur stöðum með flokkun.