Fasteignaleitin
Skráð 23. sept. 2026

Aratún 26

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
115 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
117.800.000 kr.
Fermetraverð
1.024.348 kr./m2
Brunabótamat
62.600.000 kr.
Byggt 1967
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20690861
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

EINSTAKT OG FALLEGT PARHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ Í GARÐABÆ MEÐ STÓRRI LÓÐ.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 115,0 fm.

Um er að ræða parhús byggt árið 1967 á stórri lóð. Gengið er inn í forstofu, þar til vinstri er rúmgott baðherbergið. Inn af forstofu er bjart hol með stórum glugga, sem aðskilur vistarverur hússins. Til vinstri er svefnherbergisálman en til hægri er eldhúsið og stofurnar. Hægt er að gang út í bakgarðinn úr holinu. Stórir gluggar eru í stofunni. Eldhúsið er glæsilegt og opið í borðstofuna. Lóðin er ævintýraleg með góðri aðstöðu fyrir börn og gæludýr. Nýbyggt tréhús í garðinum. Leikvöllur og stórt grænt svæði beint við hliðina á og göngustígar á þrjá vegu í kringum húsið. 

Forstofa/hol: Flísar á gólfi, gólfhiti. Útgangur út í bakgarðinn úr holinu.
Eldhús: Glæsilegt og bjart nýlegt eldhús með hvítri innréttingu frá Brúnás. Kvarts steinn er í borðplötum og vaskur er undirlímdur. Span helluborð frá Siemens er niðurfellt í borðplötuna. Flísar eru á gólfi og gólfhiti. Ísskápur, frystir og uppþvottavél eru innbyggð og fylgja.
Stofur: Stofan og borðstofan eru bjartar og með heilli gluggahlið sem snýr út að garðinum í suðurátt. Nýlegur sólbekkur úr ljósum kvarts steini er undir stofuglugga, eins og í eldhúsinu. Mikil lofthæð er í stofunni. Hægt er að ganga bæði úr eldhúsinu og holinu inn í stofurnar, parket á gólfum.
Baðherbergi: Rúmgott með stórri walk-in sturtu, hornbaðkar, upphengt salerni, innrétting við handlaugina og handklæðaofn.
Svefnherbergin: Herbergin eru þrjú, öll með gólfhita. Hjónaherbergið er rúmgott með fataskápum, stærra barnaherbergið er með fataskápum, parket á gólfum.
Þvottahús/geymsla:  Flísar á gólfi og gólfhiti, hillupláss.
Geymsluskúr: Góður um 15 fm. skúr fylgir eigninni.
Lóðin: Lóðin er stór með afgirtum sér bakgarði, gróðurhúsi og góðri verönd til suðvesturs, fyrir framan stofuna.

Að sögn eiganda hefur eignin fengið gott viðhald í gegnum tíðina; Árið 2021 var rafmagn endurnýjað að stórum hluta, árið 2022 var baðherbergið og þvottahús endurnýjað, gólfhiti lagður og hljóðvistarplötur settar upp á baðherbergi. Árið 2024 var geymsluskúr byggður og hlaðinn upp veggur í garði. Árið 2025 var pallur (verönd) smíðaður, svenherbergisálman tekin í gegn, breytt herbergisskipting, skipt um einangrun í lofti, hljóðvistarplötur í öllum herbergjum og svefnherbergisgangi, ný lýsing. Góðlfhiti lagður og olíuborið viðarparket. Árið 2026 var skipt um þak og rennur ásamt því að strompur fjarlægður og einnig voru hljóðvistarplötur settar upp í anddyri. 

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 66
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 66
Naustavör 66
200 Kópavogur
105.9 m2
Fjölbýlishús
312
1227 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 66
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 66
Naustavör 66
200 Kópavogur
101.8 m2
Fjölbýlishús
312
1129 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 64
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 64
Naustavör 64
200 Kópavogur
131.6 m2
Fjölbýlishús
322
1025 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 64
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Naustavör 64
Naustavör 64
200 Kópavogur
99.8 m2
Fjölbýlishús
312
1221 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin