Fasteignaleitin
Skráð 23. maí 2025
Deila eign
Deila

Þorfinnsgata 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
115.1 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
867.941 kr./m2
Fasteignamat
83.000.000 kr.
Brunabótamat
63.100.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1935
Þvottahús
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008750
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Lögð ný drenlögn og skólplögn endurnýjað.
Gluggar / Gler
Nýtt gler í allt húsið og gluggar gerðir upp, allt gler endurnýjað og fúgaviðgerðir gerðar á gluggakörmum árið 2015
Þak
Þakjárn endurnýjað árið 2020
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Lóð
29,37
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 4 - 5 herbergja íbúð á 2. hæð að Þorfinnsgötu 8, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 200-8750 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Inngangur er sameiginlegur með íbúð á 3. hæð, ein íbúð á hverri hæð, 3 í það heila. Íbúðin var öll tekin í gegn á vandaðan hátt á árunum 2021 - 2023 þar sem ma. eldhús var fært inn í aðra stofuna, baðherbergi endurnýjað, gólfefni og allar hurðar. Mjög vel heppnaðar endurbætur sem gjörbreyta nýtingu íbúðar til hins betra.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fastm.is

Fasteignamat eignar árið 2026 skv. HMS verður 92.450.000kr.

Eignin skiptist í gang, 2 rúmgóð svefnherbergi, samliggjandi eldhús og borðstofu, stofu, baðherbergi og herbergi með sér salerni í kjallara (merkt sem geymsla skv. teikn og HMS). Hægt gera herbergi í kjallara að stúdíóíbúð með því að bæta við sturtu og setja upp lítið eldhús. Lagnir og frárennsli til staðar. Einstaklega falleg, vel skipulögð og mikið uppgerð íbúð á besta stað í miðbæ Reykjavíkur.

Húsið er teiknað af Þorleifi Eyjólfssyni arkitekt og stendur á stórri, gróinni og glæsilegri hornlóð á horni Þorleifsgötu og Leifsgötu. Húsið og lóð hafa fengið mjög gott viðhald hin síðustu ár þar sem drenlögn og skólplögn út í götu var endurnýjað árið 2018. Þakjárn endurnýjað ásamt hús múrviðgert árið 2020. 

Garðurinn afar glæsilegur með upphituðum og upplýstum hellulögðum göngustíg í kringum húsið, nýlega endurnýjuðu torfi, sameiginlegri viðarverönd, flaggstöng og fallegum stórum og grónum trjám. Einstaklega falleg og vel viðhaldin garður.

Hér má sjá video af eigninni

Afar falleg eign á eftirsóttum og rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur hverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við fjölbreytt úrval kaffi- og veitingastaða, leikhús, listasöfn og tónleikastaði býður upp á einstaka möguleika og mikil lífsgæði.


Framkvæmdasaga: 
2015:
 - Nýtt gler í allt húsið og gluggar gerðir upp. Allt gler endurnýjað og fúgaviðgerðir gerðar á gluggakörmum. Ný regnvatnsrenna sett upp.
2018:
 - Lögð ný drenlögn og skólplögn endurnýjað. 
 - Baðherbergi standsett og hiti lagður í gólf. Handklæðaofn settur upp og ný vönduð blöndunartæki frá Vola. Bað, vaskur og salerni keypt í                   Tengi. Flísar frá Agli Árnasyni.
 - Allar neysluvatnslagnir endurnýjaðar fyrir 2 hæðina. 
2019:
- Ný hurð út í sameignina, brunahurð með góðri hljóðeinangrun. Einnig sett ný brunahurð í sameignina á fyrstu hæðinni.
- Þrýstijafnari endurnýjaður á lagnagrind. 
2020:
 - Þakjárn endurnýjað.
 - Sprungu- og múrviðgerðir gerðar á húsinu. Allir gluggar málaðir að utan. 
 - Í íbúðinni sjálfri voru gluggar málaðir að innan og ný stormjárn sett á alla glugga. 
 - Ný stétt lögð í garðinum og hann byggður upp að hluta. Nýtt gras lagt á hluta garðsins sem hafði skemmst við framkvæmdir síðustu ára. 
 - Öll sameignin máluð í stíl. Þvottahús málað og gólfið flotað og lakkað. 
2021
 - Eldhús flutt í borðstofurými og skipulagi íbúðar breytt.
 - Fyllt í hurðargat, hurðarkarmar fjarlægðir og rýmið opnað.
 - Ný rafmagnstafla í eldhúsi.
 - Rafmagn endurnýjað
 - Gólf og listar endurnýjað
2023:
Ytri byrði:
 - Hitalagnir lagðar í stétt við hús
 - Rafmagn lagt og lýsing við stétt upp að húsi
 - Garður tekinn í gegn og skipulagi hans breytt og uppgert.
Kjallararými:
 - Vatsnlagnir teknar inn og kjarnaborað fyrir klósetti og vaski.
 - Hefur rýmið verið nýtt og leigt út sem vinnustofa listamanna í meira en ár.

Nánari lýsing:
Stigagangur: Sameiginlegur með 3ju hæðinni. Gengið inn í stigagang vestan megin við hús. Snyrtilegur teppalagður stigagangur. 
Gangur: Tengir saman öll rými íbúðar.
Svefnherbergi I: Rúmgott barnaherbergi
Svefnherbergi II: Mjög rúmgott með upprunalegum innbyggðum skápum. Gott skápapláss.
Baðherbergi: Baðherbergi standsett. Hiti lagður í gólfið, handklæðaofn settur upp og ný vönduð blöndunartæki frá Vola. Flísar frá Agli Árnasyni á gólfi og veggjum. Bað, vaskur og salerni keypt í Tengi.
Stofa: Rúmgóð og björt með fallegum hornglugga. Opið og í góðri tengingu við borðstofu og eldhús. Hægt að loka á milli með innbyggðum rennuhurðum sem liggja á milli veggja.
Eldhús/Borðstofa: Eldhús er sérhannað og fært inn í borðstofu. Ný eldhúsinnrétting uppsett árið 2021 með sérpanntaðari gegnheillri eikarborðplötu á eldhúsbekk. Eldhústæki eru innbyggð og eru af gerðinni Whirlpool/Electrolux, ísskápur, spanhelluborð ásamt bakara- og örbylgjuofni í vinnuhæð. Opnar upphengdar hillur á vegg. Fallegt og vel hannað eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi. Samliggjandi borðstofu og hálf opið við stofu.
Stúdíó: 24,9fm herbergi í kjallara með sér salerni. Hefur fjölbreytta nýtingarmöguleika. Kjarnaborað var fyrir salerni og sturtu í rýminu árið 2023. Búið er að útbúa salernisaðstöðu í rýminu. Hefur rýmið verið nýtt og leigt út sem vinnustofa listamanna í meira en ár. Auðveld framkvæmd að bæta við sturtu og setja upp lítið eldhús og útbúa þannig litla stúdíóíbúð. 

Gólfefni: Parket á gólfi í öllum rýmum íbúðar að undanskyldu baðherbergi sem er flísalagt. Málað gólf í stúdíó herbergi í kjallara.
 
Sameign: Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Hver með sýna vél og rafmagnstengil. Þvottahús málað og gólfið flotað og lakkað 2020.

Lóð: Afar falleg og snyrtileg hornlóð. Garðurinn hefur verið tekinn í gegn á undanförnum árum þar sem upphitaður og upplýstur göngustígur í kringum hús hefur verið lagður og nýjar grastorfur að hluta. Sameiginleg viðarverönd. Falleg gróin tré.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/03/202153.450.000 kr.54.900.000 kr.115.1 m2476.976 kr.
26/02/201529.600.000 kr.3.000.000 kr.92.6 m232.397 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindargata 27
Opið hús:04. júní kl 12:00-12:30
Skoða eignina Lindargata 27
Lindargata 27
101 Reykjavík
106.7 m2
Fjölbýlishús
312
918 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Bankastræti 11
Skoða eignina Bankastræti 11
Bankastræti 11
101 Reykjavík
131.3 m2
Fjölbýlishús
523
759 þ.kr./m2
99.700.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 308
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 308
101 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
312
1063 þ.kr./m2
100.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 208
Bílastæði
Vesturvin V1 íb 208
101 Reykjavík
94.2 m2
Fjölbýlishús
312
1030 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin