Opið hús fimmtudaginn 30.janúar frá kl 17:00-17:30
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á stofan@stofanfasteignir.is
STOFAN FASTEIGNASALA kynnir fallega og bjarta 3 herbergja íbúð á 2.hæð í nýlegu lyftuhúsi við Hellagötu 15, Urriðaholti.
Fallegt útsýni er frá íbúðinni sem er skráð samtals 94,5 fm skv. HMS.Tvö svefnherbergi
Rúmgott og bjart alrými
Rúmgóðar svalirSérmerkt bílastæði
LyftaKomið er inn í flísalagða
forstofu með góðum fastaskápum.
Inn af forstofu er
þvottahús með flísum á gólfi.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á rúmgóðar svalir.
Eldhús er með fallegri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og háfur, innbyggð uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi. Útgengt frá herbergi út á svalir.
Barnaherbergi einnig rúmgott með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, upphengt salerni. sturta með gleri og handklæðaofn.
Sérgeymsla á jarðhæð (8,8 fm).
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Þetta er björt og falleg eign í litlu fjölbýli á góðum stað í Urriðaholtinu. Stutt er í skóla, verslanir, stofnæðar og aðra þjónustu, golfvöllur og falleg náttúra í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.