Fasteignaleitin
Skráð 25. okt. 2024
Deila eign
Deila

Valshlíð 3

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
85.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
110.900.000 kr.
Fermetraverð
1.297.076 kr./m2
Fasteignamat
8.350.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Karólína Íris Jónsdóttir
Karólína Íris Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
50 ára og eldri
Fasteignanúmer
2532724
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Kynnum til sölu nýjar og einstaklega vandaðar íbúðir í Hlíðarhorni. Um er að ræða 33 íbúðir við Valshlíð 3 í Reykjavík á suðvesturhorni byggingarreits. Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar í janúar 2025.

Íbúð 505 er 85,5 fm þar af 8,7 fm geymsla. Um er að ræða stórglæsilega og vel skipulagða 2ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaberbergi.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um innri garð. Byggingin er miðsvæðis í Reykjavík í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Stutt er því í alla helstu þjónustu, samgöngur, skóla, íþróttaaðstöðu, iðandi mannlíf og stóra vinnustaði.

Í Hlíðarhorni eru 195 íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Allar íbúðir eru með svölum, þaksvölum eða sérafnotareitum á jarðhæð og hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Allt húsið er klætt að utan með álklæðningum með gluggum úr ál/tré og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar.

Allar innréttingar íbúða eru vandaðar frá Nobilia/GKS og eldhústæki eru af tegundunum Siemens og Witt. Íbúðir skilast með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði og blástursofni, blöndunartækjum frá ítalska framleiðandanum Mariner, Berry Alloc vinylparketi og flísum frá Álfaborg. Innréttingarþema hverrar íbúðar er fyrirfram ákveðið. Íbúðir eru allar full-loftræstar.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Nánari lýsing íbúðar skv teikningu:

Anddyri: Rúmgóður fataskápur. Anddyri opnast inn í alrými.

Eldhús: Taupe gráar innréttingar frá Nobilia og eyja með vaski. Svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa. Klassískt og stílhreint í opnu og björtu alrými.

Stofa/borðstofa: Bjart og rúmgott alrými með útgengi á suðursvalir. Glæsilegt útsýni yfir Vatnsmýrina og Þingholtin.

Svefnherbergi: Gott hjónaherbergi með fataskápum.

Baðherbergi: Taupe grá innrétting og speglaskápur, “walk-in” sturta með gleri, handklæðaofn og upphengt salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum skv þemalýsingu.

Þvottaherbergi: Inn af baðherbergi. Satín-hvítar innréttingar. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.

Geymsla: Sérgeymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.

Hönnunarþema íbúðar 505 : Mói 1

Íbúð er skráð fyrir 50 ára og eldri.

Athygli kaupanda eru vakin á því að fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu S8 ehf. sem er jafnframt aðalverktaki og eigandi fasteignarinnar.

Fyrirvarar

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarfótur 19, IB 416
Bílastæði
Hlíðarfótur 19, IB 416
102 Reykjavík
102.9 m2
Fjölbýlishús
312
1117 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19 416
Bílastæði
Opið hús:23. nóv. kl 12:30-13:00
Hlíðarfótur 19 416
102 Reykjavík
102.9 m2
Fjölbýlishús
312
1117 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
1308 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
50 ára og eldri
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
83.9 m2
Fjölbýlishús
312
1226 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin