BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HLÉSKÓGAR 10 NEÐRI HÆÐ, 700 Egilsstaðir.
Fjögurra herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi, sér inngangur. Húsið stendur við lítinn botnlanga, stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt, byggt árið 1979. Eignin er íbúð 104.5 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, þrjú herbergi, baðherbergi, gangur, þvottahús og geymsla/búr.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |**Eignin verður fyrst sýnd á opnu húsi, þriðjudaginn 31. mars kl. 12.30-13.00**
Nánari lýsing: Forstofa, dúkur á gólfi, laus fataskápur.
Gangur, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi, útgengt er úr stofu út á timburverönd með skjólveggjum (sérafnot íbúðar á neðri hæð).
Eldhús, Brúnás innrétting, helluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt), borðkrókur. Harðparket á gólfi,
Herbergi I, hjónaherbergi, parket á gólfi, fjórfaldur fataskápur.
Herbergi II, parket á gólfi, þrefaldur fataskápur.
Herbergi III, (við forstofu)
Baðherbergi, flísar á gólfi, Brúnás innrétting, salerni og sturtuklefi.
Þvottahús, málað gólf, stálvaskur.
Geymsla/búr, dúkur á gólfi og hillur, innangengt frá þvottahúsi.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 217-5713. Hléskógar 10, Múlaþing.Stærð: Íbúð 104.5 m².
Brunabótamat: 55.200.000kr.
Fasteignamat: 45.700.000 kr.
Byggingarár: 1979.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
01-0101- Séreign. Rými 01.0101, Íbúð 104.5 Brúttó m².
Landeignanúmer: 157761. Notkun Íbúðarhúsalóð 1.390,0 m².
Hléskógar 10 er tvíbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er steypt, litað járn á þaki, timburgluggar og hurðar.
Hellulögð stétt liggur að að inngangi íbúðar. Lóð er gróin, timburverönd er aftan við húsið til suðurs (sérnotaflötur íbúðar).
Lóð er í óskiptri sameign beggja íbúða, gróðurhús og garðhús á lóð tilheyrir íbúð á efri hæð.
Bílastæði eru norðan megin við húsið. Sér bílastæði er fyrir hvora íbúð, íbúð á neðri hæð á bílastæðarétt (sérnotaflöt 0101) austan við bílskúr efri hæðar, sjá nánari í söluyfirliti og eignaskiptasamningi.
Lóðin er 1390.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 9.3.2026, skjal nr. 446-E-000196/2026
Nánari upplýsingar í söluyfirliti hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |