Fasteignaleitin
Opið hús:15. júlí kl 16:30-17:00
Skráð 9. júlí 2026

Suðurvangur 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
78.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
885.932 kr./m2
Brunabótamat
48.650.000 kr.
Fasteignanúmer
20800261
Húsgerð
Fjölbýlishús

Virkilega björt og hugguleg 78,9 fm 3ja herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð í litlu fjölbýli við Suðurvang 25A.
Eignin skiptist í 71,1 fm íbúð og 7,8 fm geymslu á jarðhæð, samtals 78,9 fm skv. HMS, að auki er c.a. 10 fm óskráð loftrými, heildarstærð íbúðarinnar er því í raun stærri en gefið er upp.

Nánari lýsing:
Anddyri með fatahengi. Eldhús, stofa og borðstofa í rúmgóðu alrými með góðu útsýni og útg. á svalir. Eldhús með góðu skápaplássi, stæði fyrir uppþvottavél, ofni og helluborði m/viftu yfir. Tvö svefnherbergi, bæði með skápum. Baðherbergi með baðkari og sturtu yfir ásamt tengi fyrir þvottavél. Stigi er uppá óskráð loftrými með þakgluggum sem nýtist vel sem vinnu- eða leikrými.

Sérgeymsla á jarðhæð.
Búið er að merkja stæði fyrir hverja íbúð á bílaplani og koma fyrir hleðslustöð.
Snjóbræðsla er í gangstétt að inngangi hússins.
Hluti íbúðarinnar er undir súð svo að uppgefnir fermetrar endurspegla ekki raunverulega stærð.
Einn eigandi hefur verið að íbúðinni frá upphafi.

Íbúðin er vel staðsett á friðsælum stað í enda á botnlangagötu.

Einstaklega góð staðsetning, mikil lofthæð og gott útsýni einkennir íbúðina þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallega náttúru.

Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað:


2026: Nýtt teppi á stigagangi við 25a.
2025: Viðgerðir við svalir á íbúð 301. Nýr þakpappi, einangrun og klæðning. 
2024: Settir upp rafmagnsstaurar fyrir hleðslu rafmagnsbíla. Ný ljós á gafl við bílastæði og ruslageymslu.
2020: Umfangsmiklar framkvæmdir við þak og rennur. Nýir þakkantar, nýjar rennur, nýtt bárujárn í kringum þakglugga, skipt um ryðgaðar lofttúður og ryðgað flangs undir svölum, kíttað í glugga og þeir málaðir að utan, sprungur í suðurvegg lagaðar, fyllt í og málað.

Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35 (307)
Hringhamar 307.jpg
Hringhamar 35 (307)
221 Hafnarfjörður
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 103
Bílastæði
Jöfursbás 3B íb 103
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
976 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 5b íbúð 207
Asparskógar 5b íbúð 207
300 Akranes
69.4 m2
Fjölbýlishús
312
857 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin