Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í nýlegu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur sem byggt er í anda eldri húsa sem áður stóðu við götuna.
* Frábær staðsetning í hjarta miðbæjar Reykjavíkur
* Stæði í bílakjallara
* Tvö svefnherbergiEIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA
Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Birt stærð eignar samkv. Þjóðskrá Íslands er 97,2 m2. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu í kjallara. Svalir út frá stofu. Stæði í bílakjallara.Inngangur inní íbúðina er í gegnum lokað port fyrir aftan hús, einungis sex íbúðir eru í húsinu, snyrtilegur stigagangur og rúmgóð geymsla í kjallara.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í rúmgott alrými með útgengt á svalir í vestur. Skápur við inngang.
Eldhús er opið inn í rúmgóða stofu og borðstofu.Baðherbergið er rúmgott og með sturtu, fallegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara en án glugga.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum og gott
barnaherbergi með skápum. Fallegt harðparket á öllum gólfum nema baðherbergi en það er flísalagt.
Rúmgóð geymsla í kjallara.
Opin hjólageymsla er í portinu á milli húsanna.
Bílastæði sem tilheyrir íbúðinni er í lokuðum bílakjallara við Hverfisgötu 92 og gengið er uppúr bílakjallaranum inní portið við Hverfisgötu 88.
Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur. Göngufæri í alla helstu verslun, þjónustu og afþreyingu. Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.