Fasteignaleitin
Skráð 28. okt. 2026

Dalbraut 4

FjölbýlishúsVesturland/Akranes-300
123.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
90.000.000 kr.
Fermetraverð
729.335 kr./m2
Brunabótamat
96.520.000 kr.
Byggt 2020
2. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
25054534
Húsgerð
Fjölbýlishús

FastVest  Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna: Dalbraut 4 nýlega 3ja. herb. 123.4 fm íbúð á 2.hæð með yfirbyggðum suðursvölum, LYFTUBLOKK og STÆÐI í bílgeymslu.

SKIPTI MÖGULEG Á LITLU RAÐ/PAR/EINBÝLISHÚSI.

Eignin skiptist anddyri eldhús og stofu. 2 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og þvottahús. 2 geymslur sem og hjóla/vagna geymsla á jarðhæð. Stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing:
Gengið úr lyftu húsi í gegnum sameiginlegan garð íbúa sem er á þaki 1. hæðar. 
Fortofa: Rúmgóð forstofa með fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda eitt stórt alrými 
Eldhús með eyju, fallegar innréttingar frá GKS. span helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, Útgengt út á suður svalir með svalalokun.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Gott svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Flíslagt í hólf og með fallegri innréttingu og "walk in" sturtu.
Þvottaherbergi innaf eldhúsi, flísar á gólfi og góð innrétting með vélum í vinnuhæð. 
Fljótandi parket á allri íbúðinni nema baðherbergi og þvottahúsi. 
Geymslur: Það eru 2 geymslur sem fylgja þessari eign, 10,4 fm og 6,3 fm.

Bílageymsla: Stæði í bílageymslu og þar er tilbúin tenging fyrir hleðslustöð
                                                                
Dalbraut 4 er 5 hæða hús með 26 íbúðum. Í kjallara er  bílageymsla með bílastæðum fyrir 26 bifreiðar. Í kjallara eru einnig geymslur fyrir íbúðir sem og reiðhjóla- og vagnageymsla. Innangengt er fyrir íbúa að Dalbraut 4 úr sameign inn í  þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara.
Burðarvirki hússins er forsteyptar einningar frá Smellinn. Húsið er einangrað að utan með steyptri veðurkápu. Innbyggð vélræn loftræsting er í öllum íbúðum þar sem fersklofti verður blásið inn á móti lofti sem dregið er út úr íbúðum. 

Nánari upplýsingar veitir:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / s.846 4144 / soffia@fastvest.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

FastVest með þér alla leið

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
FastVest fasteignamiðlun
http://www.fastvest.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurgata 16
Skoða eignina Suðurgata 16
Suðurgata 16
300 Akranes
113,5 m2
Hæð
413
528 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 13
Bílastæði
Opið hús:28. okt. kl 18:00-18:30
Urriðaholtsstræti 13
210 Garðabær
134,8 m2
Fjölbýlishús
322
964 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 25 (Þakíbúð)
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:28. okt. kl 19:00-19:30
Baughamar 25 (Þakíbúð)
221 Hafnarfjörður
119,4 m2
Fjölbýlishús
312
837 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 26 - Íb. 101
Bílastæði
Opið hús:29. okt. kl 17:00-17:30
Áshamar 26 - Íb. 101
221 Hafnarfjörður
110,5 m2
Fjölbýlishús
413
729 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin