*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***
*** OPIÐ HÚS SEM VERA ÁTTI ÞRIÐJUDAGINN 27.8. FELLUR ÞVÍ NIÐUR ***
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Ísleifsbúð 22, 815 Þorlákshöfn: Um er að ræða nýtt og vel skipulagt 5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 193,1 fm. þar af er íbúðarhluti 153 fm. og bílskúr 40,1 fm. Umhverfis húsið er gróinn garður með stórum suðvestur sólpall. Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð/sundlaug og verslanir.Eignin skiptist í forstofu, í alrými er eldhús og stofu / borðstofu, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, gangur / hol, baðherbergi, hjónabaðherbergi, þvottahús og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa / borðstofa: Í alrými, rúmgóð og björt, útgengt út á stóran suðvestur sólpall, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Sjónvarpshol: Rúmgott sjónvarpshol með parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með fallegri innréttingu og stórri eyju með miklu skápaplássi, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð á eyju, bakaraofn, innfelld ljós í loft, parket á gólfi.
Hjónaherbergi og hjónabaðherbergi: Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er hjónasalerni, góð innrétting, sturta, upphengt salerni, útgengi út á sólpalla, flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi, opin fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott herbergi, fataskápur, parket á gólfi.
Gangur / hol: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi, falleg innrétting, baðker, upphengt salerni, innfelld ljós í loft, flísar á gólfi og við sturtu.
Þvottahús: Með góðri innréttingu, skolvaskur, innangengt í bílskúr, lúga upp á geymsluloft, flísar á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 40,1 fm. bílskúr, heitt og kalt vatn, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, gönguhurð út á framhlið, ómálað gólf.
Húsið: Húsið er byggt 2019 og er úr timbri og klætt að utan með fínkornuðu steni, gólfhiti er í húsinu.
Lóð: Framan við húsið er möl í innkeyrslu og stétt að húsi, á norðurhlið er gras, á baklóð (suðvestur hlið hússins) er ca. 130 sólpallur og framan við hann er gras. Búið er að leggja rör út fyrir hita í í innkeyrslu og fyrir potti á sólpall, gert var ráð fyrir heitum potti í byggingu á sólpallinum.
Hér er um að ræða virkilega fallega og vel staðsetta eign. Þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
teignasala.is.