Berg fasteignasala kynnir:
Andrésbrunnur 1, 4. ra herb. 112,6 fm. íbúð á 1. hæð auk stæðis fyrir bílinn í litlu bílahúsi. Nánari lýsing: Komið er í
anddyri. Til vinstri er
þvottahús og geymsla þar innaf.
Gangur og opið í stofu og eldhús. Vandað
gegnheilt Merbau parket á gólfum. Góð eldhúsinnrétting.
Stofan er björt og rúmgóð. Opið út á
30 fm. sólpall með
munstursteypi í gólfi. Góðir skjólveggir.
Snýr í suður. Til hægri úr holi er herbergisgangur.
3 góð svefnherbergi með skápum. Gegnheilt Merbau parket á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt með góðum hreinlætistækjum og sturtuklefa. Lyfta er í húsinu, bjartur og rúmgóður stigagangur.
Stæði fyrir bílinn í 3ja bíla bílageymslu. Næg bílastæði og góð aðkoma að húsi. Nánari upplýsingar veitir:Pétur Pétursson lfs
sími 897-0047
petur@berg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Berg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.