Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Skógarhlíð 21

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
107 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
653.271 kr./m2
Brunabótamat
67.750.000 kr.
Byggt 2017
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23467094
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilegt og viðhaldslétt heilsárshús að Skógarhlíð 21 í landi Efra-Apavatns í Bláskógarbyggð. Eignin er á 9.200 m2 eignarlóð, er skráð 107 m2 að stærð og telur anddyri, eldhús, borð- og setustofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpsherbergi/hol, baðherbergi og geymslu. Eignina umlykur nýleg timburverönd og fallegur garður. Falleg eign í næsta nágrenni við Laugarvatn og í aðeins um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason., lgfs. brynjolfur@heimili.is

Nánari lýsing.
Anddyri:
Flísar á gólfi, fatahengi.
Eldhús: Falleg innrétting, góð vinnuaðstaða, ágætt skápapláss, gluggar á tvo vegu og eyja með góðum neðri hirslum. 
Stofur/alrými: Flísar á gólfi, aukin lofthæð og hiti í gólfi. Frá alrými er útgengt á þrjá vegu á timburverönd eignar.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, ágætur gluggi með opnanlegu fagi, aukin lofthæð, flísar á gólfi og laus fataskápur innan herbergis.
Svefnherbergi: Inn af sjónvarpsherbergi, flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi. 
Sjónvarpsstofa: Flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi, teikningar gera ráð fyrir þriðja svefnherbergi eignar þar sem í dag er sjónvarpsstofa.
Baðherbergi: Falleg innrétting, stór handlaug með ágætum neðri skápum, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með sturtu gleri, aukin lofthæð og stór gluggi. 
Geymsla: Við hlið inngangs er lagnarými eignar og þar er ágætt geymsluloft. 

Húseignin stendur á 9.200 m2 eignarlóð, við húsið er rúmgott bílastæði, falleg grasflöt og umhverfis húsið er nýleg timburverönd.

Falleg eign í Bláskógarbyggð, rétt við Laugarvatn og aðeins í um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is

 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skútahvammur 1A
Heitur pottur
Skoða eignina Skútahvammur 1A
Skútahvammur 1A
806 Selfoss
127.6 m2
Sumarhús
725
509 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarbraut 38
Heitur pottur
Skoða eignina Bjarkarbraut 38
Bjarkarbraut 38
805 Selfoss
87.7 m2
Sumarhús
413
713 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Grensás 26
Skoða eignina Grensás 26
Grensás 26
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
4
146 þ.kr./m2
14.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 30
Skoða eignina Grensás 30
Grensás 30
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
4
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin