Fasteignaleitin
Opið hús:27. okt. kl 17:00-18:00
Skráð 23. okt. 2026

Ferjuvað 1

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
142.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
126.500.000 kr.
Fermetraverð
887.719 kr./m2
Brunabótamat
98.110.000 kr.
Byggt 2013
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
23269692
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Einstök útsýnisíbúð á efstu hæð stórum þaksvölum, tveimur bílastæðum í bílakjallara og stórri stofu með miklu útsýni. Eignin er á fjórðu og efstu hæð í Ferjuvaði 1 í Norðlingaholti og er samkvæmt fasteignamati 142,5 fermetrar sem skiptist í 129,7 fermetra íbúð og 12,8 fermetra geymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í mjög stórt alrými með gluggum í átt að svölum á allri langhliðinni, hjónaherbergi, fataherbergi, baðherbergi og opið sjónvarpsherbergi. Auðvelt er að fjölga herbergjum. Eigninni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er með tvennum svölum, annars vegar 8,9 fermetra svölum frá hjónaherbergi og hins vegar 59,3 fermetra þaksvölum til suðurs og austurs frá stofu. Mikið og fagurt útsýni til Bláfjalla annars vegar og Esju hins vegar einkennir eignina ásamt mikilli nálægð við náttúru Heiðmerkur, Rauðavatns, Elliðavatns og Hellisheiðar með fjallahringinn allt frá Bláfjöllum til Esju.  Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is

Næg bílastæði eru við inngang hússins, en gengið er inn frá bílastæðinu í snyrtilega sameign með flísum á gólfum þar sem eru lyfta og teppalagður stigi.
Í íbúðinni er komið inn í flísalagða forstofu þar sem er fataskápur og dyr að þvottahúsi. Strax innan forstofu er snyrting til hægri en opið til alrýmis þar sem útsýnið blasir við. Til vinstri er opið herbergi sem nýtt er fyrir sjónvarp, en auðvelt væri að loka rýminu og nýta sem svefnherbergi.
Eldhús er í enda rýmisins til hægri, innrétting á endavegg og á hliðarvegg, stór eldunareyja með steinplötu og glæsilegum háfi yfir. Innrétting er glansandi hvít, með stállitum tækjum og ljósum borðplötum.
Borðstofurými tekur við að eldhúsrýminu en gengið er út á svalir á milli eldhúss og borðstofu. Svalirnar eru sem fyrr segir tæpir 60 fermetrar með skýli fyrir garðhúsgögn, grilli við eldhúsið og gríðarlegu útsýni.
Setustofa tekur við af borðstofu en nægt pláss er í rýminu. Í enda stofurýmis er í dag flygill sem nýtur sín vel, en ef vilji er til væri hægt að stúka af þann hluta rýmisins og gera þar herbergi.
Til vinstri úr innri enda alrýmis er lítill gangur þar sem er hjónaherbergi, minna herbergi sem nýtt er sem fataherbergi og baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt, veggir og gólf, innréttingar undir vaski og á veggjum, vegghengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu. Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart með glugga til norðurs og að svölum til vesturs sem gengið er út á úr hjónaherberginu. Minna herbergið er í dag innréttað sem fataherbergi en auðvelt að breyta því í barnaherbergi.
Á öllum megingólfum eru fallegt viðarparket en flísar á böðum og þvottahúsi.
Geymsla er rúmgóð 12,8 fm í kjallara hússins. Sameign er mjög snyrtileg, en þar er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Eigninni fylgja tvö stæði í lokuðum bílakjallara, hleðslustöð í öðru stæðinu.

Einstaklega glæsileg íbúð með stórkostlegu útsýni, stutt í náttúruna og Bláfjöllin.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (63)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hamravík 20
Bílskúr
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hamravík 20
Hamravík 20
112 Reykjavík
151,3 m2
Fjölbýlishús
413
660 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Laufásvegur 14
Skoða eignina Laufásvegur 14
Laufásvegur 14
340 Stykkishólmur
152,1 m2
Fjölbýlishús
423
427 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Sóleyjarimi 15
Bílastæði
Opið hús:26. okt. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Sóleyjarimi 15
Sóleyjarimi 15
112 Reykjavík
118,8 m2
Fjölbýlishús
413
799 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnhólar 6 - 8
Efsta hæð
Hrafnhólar 6 - 8
111 Reykjavík
56,8 m2
Fjölbýlishús
211
879 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin