STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Huggulegt og vel skipulagt 58,2 fm raðhús á einni hæð við Silfurtún 19 í Garði í 250, Suðurnesjabæ. Sólpallur í suð-austur með skjólveggjum milli húsa og grasflöt við sólpall. Góð bílastæði framan við hús. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi ásamt rúmgóðu baðherbergi með góðri þvottaaðstöðu. Gólfhiti í öllu húsinu.
Eignin er í heild skráð 58,2 fm skv. Þjóðskrá Íslands,
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.isForstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Stofa er björt og við hlið eldhúss og með flísum á gólfi.
Eldhús er inn af anddyri með flísum á gólfi, hvít innrétting ásamt flísum á millil efri og neðri skápa, dökk borðplata á innréttingu.
Svefnherbergin eru tvö og er annað með parketi á gólfi og skápum. Hitt herbergið er með flísum á gólfi og þaðan er útgengt á timburpall með útsýni til sjávar.
Baðherbergi rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa, hvítri innréttingu og góðu rými fyrir þvottavél og þurkara.