Fasteignaleitin
Opið hús:25. júní kl 17:00-17:45
Skráð 22. júní 2026

Asparlaut 1

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
78.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
750.318 kr./m2
Fasteignamat
23.800.000 kr.
Mynd af Sölvi Þór Sævarsson
Sölvi Þór Sævarsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2529296
Landnúmer
232218
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Nýjar lagnir
Raflagnir
Nýlegar raflagnir
Frárennslislagnir
Nýjar frárennslislagnir
Gluggar / Gler
Nýir gluggar
Þak
Nýtt þak
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestursvalir
Upphitun
Ofnalagnir
Inngangur
Sérinngangur
Valhöll fasteignasala kynnir í sölu: Glæsileg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð  í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi við Asparlaut 1 Hlíðahverfi í Reykjanesbæ.
Íbúð merkt 01-04 fastanúmer: 252-9296 er alls 78,5 m²  Íbúð á hæð er 68,8 m² og sérgeymsla í kjallara er 9,7 m².  Afhending við kaupsamning eða í júlí 2026.



--- SÝNUM SAMDÆGURS –-
Hafið samband við:  Sölva Þór Sævarsson lgfs, í s. 618-0064/ solvi@valholl.is
eða Gylfa þór Gylfason lgfs,  í síma 770-4040 / gylfi@valholl.is 
 

 
Asparlaut 1- 5 eru ný 3-5 hæða fjölbýlishús með lyftu og sameiginlegri bílageymslu í nýju hverfi í Reykjanesbæ. Byggingaraðili er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Arkitekt ARKÍS. 
Íbúðirnar eru 2ja til 6 herbergja íbúðir.  78,4 fm. til 240,6 fm.   Stæði í opinni bílageymslu fylgja flestum íbúðum.


Íbúðirnar verða afhentar fullbúnar með vönduðum innréttingum og fataskápum frá GKS. Flísar verða á baðherbergi og þvottahúsi en án annara gólfefna.
Íbúðirnar eru í nálægð við útivistar- og náttúrusvæði. Stutt í fallegar gönguleiðir þar sem hverfið er vel staðsett. Stutt er í stofnbrautir.
Afhendingartími: Íbúðirnar er tilbúnar til afhendingu í dag. 
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hér:   Asparlaut 1

Nánari lýsing
íbúð 01-04:


Anddyri: Fataskápar frá GKS, gólf er án gófefna.
Eldhús/borðstofa og stofa: Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðaðar frá GKS. Eldhúsvaskur og blöndunartæki fylgja frá GKS. Bora helluborð með innbyggðu sogi, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur frá Siemens. Virkilega bjart og fallegt rými með innbyggðri lýsingu í loftum, með dimmerum. 
Hjónaherbergi/svefnherbergi: Með sérsmíðuðum fataskápum/ fataherbergjum frá GKS.
Baðherbergi: Vandaðar flísar frá Flísabúðinni á gólfi og veggjum sem ná að lofti, innrétting frá GKS. Handlaugarskál með hitastýrðu blöndunartæki, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu. Sturta skilast með innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhlið úr gleri.
Þvottahús: Gólf flísalagt, innréttingar frá GKS með skolvaski og blöndunartæki í borði. Niðurfall í gólfi, tengingar fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Geymslur: Geymsla í séreign sem fylgir íbúðinni, Rúmgóð vagna og hjólageymsla í sameign.

Næsta umhverfi: Umhverfið um eignina verður mjög skemmtilegt með skjólgóðu miðjusvæði fyrir íbúa. Eignin er í göngufæri við alla helstu þjónustu og öll helstu íþróttamannvirki, fjölbrautaskóla og útivistarsvæði. Um 25 mínútur frá höfuðborgarsvæði og 5 mínútur frá Flugstöð. 
Allar eignirnar í húsinu eru ti sölu. Tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir á verðbilinu 54.900.000 - 129.000.000. 

Yfirlit úr skilalýsingu:
- Innihurðir eru yfirfelldar frá Birgison / Parka
- Útihurðir frá Rational
- Íbúðirnar eru upphitaðar með ofnakerfum
- Loftræsti-, vatns,- og þrifalagnir fylgja frágengnar. Forhitari er á heitu neysluvatni
- Póstkassar verða í stigahúsi
- Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space frá Kone
- Bílgeymsla er í opnu bílskýli á milli húsa, gólf steypt og vélslípað og bílastæði merkt
- Sorpgeymsla verður á sérmerktu svæði á lóðinni
- Þak er með tvöföldu lagi af eldsoðnum tjörupappa ofan á steypta plötu. Einangrun er 200mm rakavarin þrýsti einangrun.
- Útiljós og rafmagnstengill er á öllum svölum
- Lóð verður fullfrágengin. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið. Bílastæði eru malbikuð og eða hellulögð.

Íbúðirnar skilast allar án gólfefna á alrýmum og herbergjum en með flísum á votrýmum. Að öðru leyti fullbúnar að innan með fullbúinni úti aðstöðu.

Nánari upplýsingar veita:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is 
Gylfi þór Gylfason löggiltur fasteignasali. í síma 770-4040 / gylfi@valholl.is 
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Réttarholtsvegur 3 með bílskúr
Bílskúr
Opið hús:25. júní kl 17:45-18:30
Réttarholtsvegur 3 með bílskúr
108 Reykjavík
89.5 m2
Fjölbýlishús
322
781 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Vindakór 16
Skoða eignina Vindakór 16
Vindakór 16
203 Kópavogur
122.5 m2
Fjölbýlishús
413
731 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisbraut 16
Bílastæði
Skoða eignina Skyggnisbraut 16
Skyggnisbraut 16
113 Reykjavík
58.8 m2
Fjölbýlishús
211
1012 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Lindarbraut 10
Skoða eignina Lindarbraut 10
Lindarbraut 10
170 Seltjarnarnes
117.5 m2
Fjölbýlishús
513
893 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin