ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu virkilega huggulegt og vel staðsett enda raðhús í botngötu við Heiðarholt 1d. í Keflavík. Um er að ræða 90,7fm raðhús með þremur svefnherbergjum, aflokaðri verönd með heitum potti og ljósum á sólarúri. Steypt bílaplan. Lóð er gróin og tyrfð.
Eignin er í göngufæri við Heiðarskóla og leikskólann Heiðarsel.
Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð 2018 sem og innra skipulaga hennar breytt að hluta.
*** Búið er að skipta um ofna í öllum herbergjum.
*** Setja gólfhiti á stofu, eldhúsi og borðstofu
*** Skipt um eldhúsinnréttingu og tæki 2018
*** Hurð sett út á pall 2018
*** Baðherbergi endurnýjað 2018
*** Nýr pallur ásamt heitum potti 2021
*** Steypt þrefallt russlatunnuskýliNánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.
Halla Vilbergs Löggiltur fasteignasali, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.isNánari upplýsingar:Forstofa: Er með fataskáp, flísar á gólfum.
Eldhúsið: Er í opnu rými með borðstofu og stofu, hvít rúmgóð eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Er björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi. Útgengt er út á pall með heitum potti. Parket er á gólfum.
Hjónaherbergi: Er með parket á gófi.
Barnaherbergi: Eru 2, með parket í gólfum
Baðherbergi: Þar er nýleg baðinnrétting, upphengt klósett og "walk in" sturta.
Þvottahús innangengt úr holi, aflokað með rennihurð, hefur flísar á gólfi og þar er hurð út á baklóð. Inntaks og veitukerfi er staðsett í þvottahúsi.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.