Virkilega falleg íbúð á þriðju hæð við Jarpstjörn 2, Úlfarsárdal, 113 Reykjavík. Rúmgóð 114 fm íbúð á þriðju hæð sem snýr út að Jarpstjörn. Þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi, opið eldhús inn í borðstofu og stofu. Stæði í lokaðri bílageymslu. Í íbúðinni er sér loftræstikerfi sem stuðlar að heilbrigði húss og íbúa, auk orkusparnaðar sem skilar allt að 80% endurnýting á varma. Vönduð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Svalir með rennihurð og fallegt útsýni.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isSmellið hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsinguNánari lýsing:Komið er inn forstofu með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum.
Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Sérstæð vinnueyja með eldavél og háfi.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi(12,5 fm) er rúmgott með góðu skápaplássi. Tvö barnaherbergi með skápum bæði um 10,2 fm.
Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á svalir út frá stofu, stór rennihurð.
Þvottahús: Þvottahús inn á salerni með fallegri innréttingu.
Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 12,3 fm geymslu merkt 0017.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.