Valborg fasteignasala kynnir einbýlishús við Klettahlíð 6, 810 Hveragerði.
Um er að ræða einbýlishús með bílskúr á stórri lóð, með þremur svefnherbergjum.
Eignin er skráð 165,7 m² en hún skiptist í 109,9 m² íbúð og 55,8 m² bílskúr, samtals 165,7 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og bílskúr.
** ÁÆTLAÐ FASTEIGNAMAT 2026 ER KR. 90.750.000 kr. **Sjá staðsetningu hér:Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi. Tvöfaldur skápur.
Eldhús að hluta opið inn í alrými og stofu. Viðarinnrétting með skápa og skúffuplássi. Helluborð, bakarofn og gert ráð fyrir ísskáp í innréttingu, parket á gólfi.
Stofan er björt með stórum gluggum er snúa út á baklóð, parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísalagt gólf en þar er innrétting með handlaug, skápa og skúffupláss, sturtuklefi og wc. Gert er ráð fyrir þvottavél á baðherbergi.
Svefnherbergin eru þrjú.Hjónaherbergi er með
nýju vínilparketi á gólfi, þar er fataskápur
Barnaherbergi með parketi á gólfi. Þar er fataskápur.
Forstofuherbergi með parketi á gólfi.
Bílskúr er um 56 m². Þar er rafdrifin bílskúrshurð og gönguhurð á hlið. Gluggar eru á tvo vegu, hlið og að baklóð.
Lóð er tyrft og með töluverðum trjágróðri.
Stærð lóðar er 816,0 m²Að sögn eigenda hefur verið unnið í viðhaldi á eigninni undanfarin ár.
Eignin var máluð að innan og utan árið 2023 en engin hefur búið í eigninni frá þeim tíma.
Þá var einnig þak málað árið 2023.
Skolplögn frá húsi var endurnýjuð árið 2022 en þá var settur nýr brunnur.
Hluti af ofnum hafa verið endurnýjaðir sem og hluti af gleri í gluggum.
Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.