Fasteignaleitin
Opið hús:28. nóv. kl 12:30-13:00
Skráð 25. nóv. 2026

Fífurimi 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
74.4 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.500.000 kr.
Fermetraverð
920.699 kr./m2
Fasteignamat
57.700.000 kr.
Brunabótamat
43.600.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
8933276www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 1991
Jarðhæð af 2
Garður
Pallur
Heitur pottur
Sturtuklefi
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2040413
Landnúmer
109571
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Sagðar í lagi.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Sagðar í lagi.
Gluggar / Gler
Sagðir í lagi.
Þak
Sagt í lagi.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðvestur verönd úr stofu.
Upphitun
Hitaveita / Gólfhiti / Sögð í lagi.
Inngangur
Sameiginlegur
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Fífurima 2, íbúð 102, 112 Reykjavík:

Um er að ræða bjarta, fallega og vel skipulagða íbúð í fjögurra íbúða fjölbýlishúsi á góðum stað í Grafarvogi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan árið 2026, meðal annars eldhús, baðherbergi og gólfhiti. Úr stofu er útgengi út á um 29 fm afgirta og hellulagða suðvesturverönd með heitum potti, þar sem hægt er að njóta útiveru í góðu skjóli. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 74,4 fm. Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í anddyri, rúmgott og bjart alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Auk þess er sameiginleg vagna- og hjólageymsla í húsinu.

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri: Gengið er inn í sameiginlegan inngang á jarðhæð og er inngangur í íbúðina til hægri. Í anddyri er svartur fataskápur og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgott, bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skemmtilega heild. Góðir gluggar veita rýminu náttúrulega birtu. Frá stofu er útgengi út á um 29 fm afgirta suðvesturverönd með heitum potti. Parket er á gólfi.
Eldhús: Fallegt og endurnýjað eldhús frá árinu 2026 með nýrri innréttingu frá IKEA í svörtum og brúnum litum. Eldhúsið er opið við stofu og borðstofu og þar er eyja með skúffum, spanhelluborði og bakarofni. Tvöfaldur ísskápur og innbyggð uppþvottavél eru í eldhúsinu. Nýjar flísar eru á vegg við innréttingu ásamt nýjum vaski og blöndunartækjum. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með svörtum fataskápum og teppi á gólfi.
Baðherbergi: Glæsilegt og endurnýjað baðherbergi frá árinu 2026 með fallegum flísum frá Álfaborg á veggjum og gólfi. Brún baðinnrétting með vaski, rúmgóð walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum frá Grohe og upphengt salerni frá Grohe.
Þvottahús / geymsla: Á samþykktri teikningu er rýmið skráð sem geymsla en búið er að færa þvottahúsið þangað inn, vinnuborð, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gólfhitastýringar. Parket á gólfi. 
Verönd: Frá stofu er gengið út á um 29 fm afgirta og hellulagða suðvesturverönd. Þar er heitur rafmagnspottur og skjólveggir sem skapa notalega aðstöðu til útiveru. Hlið er á girðingunni með aðgengi út á lóðina.
Sameign: Snyrtilegur sameiginlegur inngangur og stigagangur. Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Húsið: Fjögurra íbúða fjölbýlishús með tveimur íbúðum á hvorri hæð. Gólfhiti er í íbúðinni.
Lóð og bílastæði: Húsið stendur á 756 fm sameiginlegri lóð með grasflötum og steyptri gangstétt að húsinu. Bílastæði eru við húsið og fylgir eigninni sérmerkt bílastæði.

Að sögn eiganda hefur eignin verið mikið endurnýjuð að innan á árinu 2026, meðal annars:
* Eldhús: Ný IKEA-eldhúsinnrétting, innbyggð uppþvottavél, nýtt spanhelluborð og bakarofn, nýjar veggflísar, vaskur og blöndunartæki.
* Baðherbergi: Með nýjum flísum frá Álfaborg á veggjum og gólfi, nýrri innréttingu með vaski og tækjum, innbyggðum blöndunartækjum í sturtu og upphengdu salerni.
* Gólfhiti: Gólfhiti settur í íbúðina.
* Þvottaaðstaða: Þvottaaðstaða færð yfir í geymslurými.
* Gólfefni: Nýtt parket í íbúðinni frá Álfaborg. 
* Gluggatjöld: Nýjar gardínur í stofu og hjónaherbergi.
* Verönd: Nýir skjólveggir og heitur pottur.

Fífurimi 2 er vel staðsett í Grafarvogi þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu, skóla, íþróttir og útivist. Í nágrenninu eru leik-, grunn- og framhaldsskólar, íþrótta- og afþreyingarmiðstöðin Egilshöll, golfvöllurinn á Korpúlfsstöðum og verslunarmiðstöðin Spöngin. Hér er því um að ræða áhugaverða eign fyrir þá sem vilja búa í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi með góða þjónustu í nágrenninu.

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð íbúð með rúmgóðum suðvesturpalli, heitum potti og sérmerktu bílastæði. Eign sem vert er að skoða!

Allar nánari upplýsingar veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteigna- og skipasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893-3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/07/202553.400.000 kr.58.500.000 kr.74.4 m2786.290 kr.Já
02/11/202237.500.000 kr.52.000.000 kr.74.4 m2698.924 kr.Já
06/10/201621.300.000 kr.28.200.000 kr.74.4 m2379.032 kr.Já
01/10/201316.850.000 kr.18.500.000 kr.74.4 m2248.655 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skyggnisbraut 30
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Skyggnisbraut 30
Skyggnisbraut 30
113 Reykjavík
76,9 m2
Fjölbýlishús
211
831 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Njálsgata 85
Skoða eignina Njálsgata 85
Njálsgata 85
101 Reykjavík
70,4 m2
Fjölbýlishús
412
922 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Þórunnarstræti 106C
Þórunnarstræti 106C
600 Akureyri
85,3 m2
Fjölbýlishús
122
632 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Kristnibraut 43
3D Sýn
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Kristnibraut 43
Kristnibraut 43
113 Reykjavík
128,6 m2
Fjölbýlishús
312
699 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin