Fasteignaleitin
Opið hús:21. júlí kl 17:30-18:00
Skráð 16. júlí 2026

Rauðagerði 39

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
357.2 m2
8 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
228.900.000 kr.
Fermetraverð
640.817 kr./m2
Fasteignamat
148.850.000 kr.
Brunabótamat
172.650.000 kr.
Mynd af Kristín Sigurey Sigurðardóttir
Kristín Sigurey Sigurðardóttir
www.101.isEignalisti
Geymsla 91.6m2
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2035486
Landnúmer
108312
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
í lagi/upprunalegt
Raflagnir
í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi/upprunalegt
Gluggar / Gler
í lagi
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já tvennar
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Vel staðsett fjölskylduhús við Rauðagerði, húsið er á tveimur hæðum, gróinn garður, pallur að framan og bílskúr. 

Skipulag eignar: 
Eignin samanstendur af: Forstofum, forstofuherbergi, alrými/ hol/stofu/borðstofu bæði á efri og neðri hæð, tveimur eldhúsum, búri, fjórum svefnherbergjum (geta verið sex) og tveimur baðherbergjum, stóru þvottahúsi sem einnig er baðherbergi, stóru tómstundaherbergi sem hægt er að skipta í tvö svefnherbergi, geymslu í kjallara og Bílskúr. 

Lýsing eignar.
Efri hæð:

Forstofa, rúmgóð og með fataskáp,  hurð lokar forstofu af við alrými. Innaf forstofu er rúmgott herbergi. 
Komið er inn af forstofu í opið alrými, einkar rúmgott, hátt til lofts, stórir gluggar til norðurs. Úr alrými er gengið niður teppalagðan stiga á neðri hæð hússins. 
Stofa/borðstofa er hluti af alrými, stórir gluggar vísa í norður og vestur, útgangur að vestursvölum. 
Eldhús inn af opnu rými við hol á vinstri hönd, svört nýleg innrétting, efri skápar og neðri skápar, ljós eikarlímtrés borðplata. Helluborð, ofn og vifta. Góður borðkrókur með stórum vestur gluggum. 
Búr er innaf eldhúsi, stúkað af með rennihurð. 
Tvö rúmgóð parketlögð svefnherbergi eru á efri hæðinni (auk forstofuherbergis) ásamt nýlega uppgerðu baðherbergi. 
Gólfefni efri hæðar er flísar með parketáferð nema á baðherbergi. Hiti er í gólfum alrýmis, eldhúss og forstofu á efri hæð.  

Neðri hæð:
Komið er niður teppalagðan stiga í alrými sem samanstendur af holi/borðstofu/stofu. Parketlagt. 
Úr holi er gengið inn í eldhús með hvítri innréttingu og tómstundarherbergi, þaðan er útgengi út í garð vestan megin við hús. 
Þegar komið er niður stigann þá er á hægri hönd stórt þvottahús og baðherbergi. Sauna sem við þvottahús fylgir ekki með eigninni. 
Beint á móti stiga er eitt gott svefnherbergi með skápum. 
Undir stiga er svo gengið inn á rúmgott baðherbergi og í stóra geymslu. 

Bílskúr skráður samkvæmt fasteignayfirliti 33,4 fm. innréttingar við vegg - rafmagn, heitt og kalt vatn.

Bílaplan er hellulagt og með hitalögn. 
Garður er gróinn, snýr í suður að framan en þar er góður pallur en gróður og helllagðar tröppur að vestan, norðan og austan megin.
Tveir inngangar eru í eignina á neðri hæð, auk aðalinngangs á efri hæð,  annar vestan megin og hinn austan megin. 

Viðhald núverandi eigenda frá 2021
2021 - Parketflísar á stofu, gang, forstofu, eldhús og búr efri hæðar
2021 - parket á herbergi á efri hæð 
2021 - hiti í gólf í stofu, alrými, eldhúsi og forstofu á efri hæð (stýring er inni í forstofuskáp)
2021 - skipt um eldhúsinnréttingu
2021 - stigaop stækkað og settur stigi 
2021 - nýjar vatnslagnir frá eldhúsi á neðri hæð
2022 - pallur í suður 
2024 - Þak yfirfarið, skipt um járn og pappa á öllu þakinu og skipt um timbur á smá hluta þar sem það þurfti, loftun bætt. 
2024 - þakkantur málaður
2024 - sorptunnuskýli 
2025 - Nýtt gler og gluggalistar í stofu á efri hæð og í forstofuherbergi. 

Eignin er á tveimur fastanúmerum, var áður með tveimur íbúðum. 91,6 ferm sem skráður er hér ofar sem geymsla er skráð íbúð hjá HMS. Núverandi eigendur nýta húsið sem eina íbúð en auðvelt er að breyta tilbaka.
 
Meta þarf hvort kominn er tími á endurnýjun á þakkanti og hvort að hreinsa þurfi úr dreni við þakrennur.  
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. 

Eignin býður upp á mikla möguleika ef vilji er til að skipta henni upp í smærri einingar. Hægt er að útbúa íbúð á neðri hæð eins og var hjá fyrri eigendum en þar sem tveir inngangar eru á neðri hæð væri möguleiki á að útbúa tvær íbúðir þar.
 
Allar upplýsingar veita: Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is og Sigþór Reynir Björgvinsson s.841 9992, sigthor@101.is 
Bókið skoðun á kristin@101.is eða í síma 820-8101 


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 3.800,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/03/202185.700.000 kr.134.000.000 kr.357.2 m2375.139 kr.Nei
29/01/201448.550.000 kr.69.500.000 kr.357.2 m2194.568 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1982
91.6 m2
Fasteignanúmer
2035485
Byggingarefni
Steypa
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
58.800.000 kr.
Lóðarmat
12.600.000 kr.
Fasteignamat samtals
71.400.000 kr.
Brunabótamat
47.800.000 kr.

Myndir (55)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gnitakór 7
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Gnitakór 7
Gnitakór 7
203 Kópavogur
386 m2
Einbýlishús
83
661 þ.kr./m2
255.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkuland 4a
Bílskúr
Skoða eignina Brekkuland 4a
Brekkuland 4a
270 Mosfellsbær
339.6 m2
Einbýlishús
533
913 þ.kr./m2
310.000.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 7
Bílskúr
Skoða eignina Ljósheimar 7
Ljósheimar 7
104 Reykjavík
262.5 m2
Raðhús
614
686 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Viðjugerði 2
V2.jpg
Skoða eignina Viðjugerði 2
Viðjugerði 2
108 Reykjavík
272.5 m2
Einbýlishús
836
734 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin